Á heitu sumri er sítrusávextir eitthvað svo einstaklega viðeigandi. Þeir gefa frískandi og ferskt bragð sem hressir og svalar. Þess vegna er límonaði sívinsæll sumardrykkur. Hér er uppskrift að límónu- og pistasíuköku sem er dásamleg með kaffinu í garðinum í eftirmiðdaginn og hinn fullkomni eftirréttur þegar borðað er úti.
Límónu- og pistasíukaka
Í botninn:
140 g ósaltað smjör
120 g sykur
4 eggjarauður
300 g hveiti
Fyllingin
240 g smjör
240 g sykur
4 egg
80 g möndlur malaðar í matvinnsluvél
160 g pistasíur malaðar í matvinnsluvél
Hitið ofninn í 170° C. Þeytið saman smjöri og sykri í botninn. Bætið við eggjarauðunum einni og einni í einu, síðan hveitinu og látið blandast þar til allt er orðið samhangandi deig. Breiðið deigið út á milli tveggja hveitistráðra smjörpappírslengja með kökukefli. Leggið það síðan í smurt 20 cm springform og látið það teygja sig upp á barmana. Setjið plastfilmu yfir og kælið í minnsta kosti 15 mínútur.
Fyllingin er útbúin meðan pædeigið kólnar. Þeytið sykurinn og smjörið þar til það er orðið ljóst og létt. Bætið eggjunum við einu og einu í einu og blandið vel eftir að hverju og einu hefur verið bætt við. Hrærið síðan varlega saman við möndlunum og pistasíunum. Blandið vel og hellið síðan ofan á pædeigið í forminu. Kælið í um það bil tíu mínútur í kæliskáp, stingið síðan forminu inn í heitan ofninn og bakið í 35-40 mínútur eða þar til gullin húð hefur myndast ofan á kökunni. Berið fram með þeyttum rjóma eða ís.







