Heillandi myndheimur Hafsteins Michael

Nú stendur yfir heillandi myndlistarsýning, Breiðholts boogie, í Borgarbókasafninu Gerðubergi. Um er að ræða yfirlitssýningu á verkum listamannsins Hafsteins Michael en hann er þekktur fyrir heillandi og frumlegan myndheim. 

Listamaðurinn Hafsteinn Michael á að baki langan og farsælan feril í myndlist og hefur haldið um tuttugu einkasýningar auk þess að taka þátt í fjölda samsýninga. Verk hans hafa hlotið mikið lof í gegnum tíðina, hvort sem um ræðir olíumálverk, grafík eða teikningar.

Á sýningunni á Borgarbókasafninu Gerðubergi gefur að líta yfirlit verka úr smiðju Hafsteins þar sem gestum gefst kostur á að kynnast óvenjulegum en einstökum myndheimi þessa magnaða listamanns. Myndheimi þar sem kunnugleg minni eru sett í nýtt samhengi og nýjar goðsögur líta dagsins ljós, svo úr verður áhugaverð sýning sem vekur spurningar og býður upp á margvíslega túlkun.

Sýningin stendur til 25. apríl.

Ókeypis er inn á hana og eru öll hjartanlega velkomin.

Um listamanninn

Hafsteinn útskrifaðist vorið 1999 úr Myndlistar- og handíðaskóla Íslands (MHÍ) og hefur verið áberandi á íslenskri myndlistarsenu um áratugaskeið. Samhliða því hefur hann meðal annars starfað við leikmyndagerð, til dæmis fyrir Íslensku óperuna, Borgarleikhúsið og í tengslum við ýmis kvikmyndaverkefni. Í rúm þrjú ár var hann jafnframt listrænn stjórnandi hjá samfélagsmiðlinum GogoYogo. Auk myndlistarstarfa hefur Hafsteinn spilað með fjölmörgum hljómsveitum og gefið út sólóefni undir merkjum Rafsteins.

Nánar um sýninguna á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbokasafn.is