Innblásinn og flottur stíll

Búningar í kvikmyndum eru einstaklega vandaðir. Þeir geta verið innblástur að nýjum stíl eða skemmtilegum snúning á þann fatnaði sem til er í fataskápnum. Stundum minna þeir okkur á liðna tíma, dásamlega tísku og rómantík sem var nánast gleymd. Sú var sannarlega raunin með vinnu Joönnu Johnston fyrir kvikmyndina The Man from U.N.C.L.E.

Myndin gerist á tíma kalda stríðsins, á sjöunda áratug síðustu aldar og hér dúkka upp minipilsin, háu gervileðurstígvélin, plastskartgripirnir, skrautleg mynstur, slæður um höfðið og stór sólgleraugu. Flestir voru sennilega búnir að gleyma hversu flottur þessi stíll var.

Joanna leitaði víða fanga þegar hún var að hanna búningana. Hún horfði á kvikmyndir og sjónvarpsþætti frá þessum tíma en hún lá líka Vogue-blöðum, enda tímarit einna allra besti miðillinn til að varðveita útlit og tíðaranda. Marisa Berenson og Veruschka voru meðal þeirra kvenna sem hún sá fyrir sér. Í myndinni er Alicia Vikander með Marni-eyrnalokka og Devaux-handtösku sem eru meðal fallegustu fylgihluta sem sést hafa á hvíta tjaldinu. En myndirnar tala sínu máli og sjá má áhrif frá búningunum þessarar myndar á sýningarpöllum tískuhúsanna nú í vor.