Umönnunaraðilar þurfa hvíld, verða að fá hvíld

Leikkonan Laura Dern missti móður sína, Diane Ladd,  í nóvember í fyrra. Þá hafði Diane barist lengi við sjaldgæfa lungnatrefjun, idiopathic pulmonary fibrosis og dóttir hennar verið umönnunaraðili hennar. Fyrr sama ár dó David Lynch einn besti vinur og samstarfsmaður Lauru svo sorgin setti sannarlega svip sinn á árið. Í nýlegu viðtali við tímarit AARP, samtök eldri borgara í Bandaríkjunum opnaði Laura sig um hvernig það væri að sinna nánum ættingja í slíkum veikindum.

Mæðgunar, Laura og Diane

Diane var glæsileg kona og vinsæl leikkona á sinni tíð. Flestir muna eftir glæsilegri frammistöðu hennar í Alice Doesn’t Live Here Any More, Wild at Heart, Chinatown og Rambling Rose. Hún var þrisvar tilnefnd til Óskarsverðlaun, hlaut BAFTA-verðlaun og Golden Globe. Í sjö ár barðist hún við sjúkdóminn en það er óvenjulega langur tími. Oftast nær leggur lungnatrefjun fólk að velli á mun fyrr. Alveg frá því móðir hennar greindist árið 2018 stóð Laura eins og klettur við hlið hennar og sinnti um hana af mikilli natni. Þær gengu saman á hverjum degi til að Diane fengi hreint loft í lungun, Laura sá um að gefa henni lyfin og hjálpaði henni að sinna daglegum störfum þegar þau fóru að reynast erfitt. Þær skrifuðu bók saman um samveruna og samtöl sín, Honey, Baby, Mine: A Mother and Daughter Talk, Life, Death, Love (and Banana Pudding).

Diane var einkar glæsileg kona.

Laura var eina eftirlifandi barn Diane en eldri systir hennar, Diane Elizabeth, drukknaði í sundlaug við heimili fjölskyldunnar aðeins átján mánaða. Þær mæðgur voru mjög nánar en Bruce Dern faðir Lauru er enn á lífi. Hann varð níræður þann 4. júní síðasliðinn. Bruce og Diane skildu árið 1969 en sorgin eftir barnsmissinn hafði mikil áhrif á samband þeirra. Bruce er einnig leikari og þekktur fyrir að hafa skotið John Wayne í bakið í kvikmyndinni The Cowboys frá árinu 1972. Það var í fyrsta sinn sem hetjan John Wayne lifði ekki af baráttuna samkvæmt handriti í bíómynd. Margir Bandaríkjamenn voru Bruce svo reiðir að það tók hann langan tíma að koma ferlinum aftur í gang.

Diane Ladd og Bruce Dern meðan allt lék í lyndi.

Leggur sitt lóð á vogarskálarnar

Frá því móðir hennar dó hefur Laura unnið að því að auka meðvitund landa sinna um lungnatrefjun. Móðir hennar gekk milli lækna vegna erfiðra einkenna á borð við mæði, orkuleysi. Hún var fullviss um að eitthvað væri að henni í lungunum en læknarnir slógu það út af borðinu af því að hún hafði aldrei reykt. Þegar hún loks greindist var henni sagt að sennilega myndi hún ekki lifa nema sex mánuði því lungnatrefjun veldur varanlegum örum á lungnavefnum. Þrátt fyrir svartsýni læknanna ákvað Diane að taka úrskurðinum af æðruleysi og gera sitt til að lifa með sjúkdómnum. Það tókst svo vel að hún náði sjö árum með dóttur sinni.

Auglýsing

Þær byrjuðu strax á að ganga saman daglega og á þessum gönguferðum töluðu þær um allt milli himins og jarðar og þær samræður eru uppistaðan í bókinni sem þær skrifuðu. Aðspurð um hvað hafi verið mest krefjandi við að vera aðalumönnunaraðili móður sinnar svaraði Laura:

Laura og Diane í einum af mörgum gönguferðum sínum.

„Mamma studdi mig svo mikið í hlutverki mínu sem umönnunaraðili og var svo frábær talsmaður fyrir sjálfa sig. Hún var ótrúlega góður sjúklingur. Hún hlustaði virkilega, barðist fyrir því að fá annað og þriðja álit á hlutunum og kynnti sér málin vel. Og hún barðist fyrir mig.

Hún sagði við mig: „Farðu með hundinn í göngutúr. Farðu út og fáðu þér ferskt loft.“ Ég svaraði: „Ég vil ekki fara frá þér.“ Og hún sagði: „Nei, ég er að segja þetta af eigingirni, Laura. Ef þú færð smá stund fyrir sjálfa þig, þá verðurðu þolinmóðari við mig þegar ég á erfitt seinna.“ Hún vissi að ég þurfti þess. Ég þurfti að leggja mig eða ég þurfti að fá mér að borða. Og það að hún skyldi standa með mér á sama tíma og hún var að standa með sjálfri sér er bara alveg ótrúlegt, meðvitað og fallegt. En ég held að það hafi gert mig að betri liðsfélaga. Ég þurfti að læra að vera meðvituð um hvað ég þyrfti til að vera mín besta útgáfa fyrir mömmu mína. Það var stórt atriði.“

Þetta er mjög áhugavert að sjá því umönnunaraðilar gleyma oft sjálfum sér og örmagnast þess vegna. Laura hefur víða bent á þetta atriði og það að mikilvægt sé að fólk berjist fyrir því að fá alla þá aðstoð sem þeir þurfa til geta sinnt umönnun ástvinar. Hún er líka meðal þeirra leikkvenna sem hafa vakið athygli umheimsins á aldursfordómum í Hollywood og einkum hvernig þeir birtast gagnvart konum. Það er því óhætt að segja að hún nýti eigin reynslu til að leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að bæta líf annarra.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.