Nýtt og skemmtilegt úr gömlum gallabuxum

Leynast gallabuxur í skápnum hjá þér sem verða ekki notaðar aftur? Er þá ekki tilvalið að gera eitthvað nytsamt úr þeim?

Auglýsing

Guðrún Borghildur, textílhönnuður, leggur áherslu á endurnýtingu í hönnun sinni enda eru hráefnisbirgðir heimsins ekki endalausar. Hún notar margs konar textíl við sköpunina en að þessu sinni eru gallabuxur eða annar fatnaður úr gallaefni viðfangsefnið.

Guðrún Borghildur verður með smiðju á Borgarbókasafninu Árbæ, sunnudaginn 20. september frá kl. 13:00 – 14:00. Í smiðjunni búa þátttakendur til buddu, litla körfu eða annað skemmtilegt og eru beðnir um að taka með sér gallabuxur og annan efnivið til skrauts að heiman. Þó verður eitthvað af skrauti, tölum og slíku, sem hægt er að grípa í á staðnum.

Smiðjan er haldin í tengslum við make-a-thek, alþjóðlegt verkefni sem Borgarbókasafnið tekur þátt í og styrkt er af New Horizon sjóði Evrópusambandsins. Markmið verkefnisins er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur.

Nánar um make-a-thek verkefnið

Nánar um viðburðinn á heimasíðu Borgarbókasafnsins