Þórdís Gísladóttir, rithöfundur og þýðandi, hefur komið víða við á ferlinum. Hún skrifar jöfnum höndum fyrir börn og fullorðna og hefur einnig samið námsefni, útvarpsþætti og jóladagatal fyrir RÚV. Þá hefur hún þýtt fjölda bóka og leikrit og áfram mætti telja. Þórdís hefur hlotið tilnefningar og mörg verðlaun, m.a. Maístjörnuna, ljóðaverðlaun Landsbókasafns og Rithöfundasambandsins og Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna.
Fyrsta ljóðabók Þórdísar, Leyndarmál annarra, hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2010 og á eftir hafa fylgt fimm ljóðabækur.. Þórdís hefur þýtt mikið og skrifað efni fyrir fullorðna og ekki síður börn og unglinga. „Ég gaf út fyrstu ljóðabókina mína 2010 en þá var ég búin að þýða nokkrar bækur. Ég sendi inn handrit í Tómasarverðlaunin og fékk þau, ég var 45 ára sem einhverjum þykir nokkuð hár aldur til að byrja að skrifa, en Guðrún Helgadóttir og Astrid Lindgren voru báðar tæplega fertugar þegar þær hófu ferilinn og fleiri mætti nefna, eins og Málfríði Einarsdóttur sem var 78 ára,“ segir Þórdís og hlær.
Ævi Þórdísar hefur ekki snúist um að yrkja ljóð, hún hefur sinnt margvíslegum ritstörfum. „Já, ég var aldrei með neinn ungskáldadraum. Ég orti bara smávegis til gamans þegar ég var í menntaskóla til að skemmta vinkonum mínum, ljóðagerðin kom smám saman seinna. Ég er léleg markmiðakona, ég set mér ekki beinlínis markmið og vinn síðan að þeim rólega. En mér finnst það bara mjög fínt og það hentar mér, það er alla vega ein gerð af lífsstíl. Frumsömdu skrifin og þýðingarnar styðja hvort annað, þótt þetta sé ólíkt þá er þetta á einhverju ákveðnu sviði.“
Hentar ekki annað en að vera í skapandi starfi
„Ég lít á mig sem listamann og einhvers konar skapandi fræðikonu. Ég hef prófað að vinna sem verkefnastjóri hjá opinberum stofnunum og það hentaði mér ekki, en það eru mörg störf skapandi þó að þau séu ekki listamannsstörf, ég held t.d. að það sé mjög skapandi að vera kokkur eða blómaskreytingamanneskja, mér finnst þetta vera að sama meiði. Konur unnu við handverk en það og þeirra skriftir hafa verið smættuð í gegnum árin,“ segir Þórdís.
Þórdís segir að sköpunarþörfin hafi alltaf verið til staðar hjá sér. „Ég held að hún hafi alltaf blundað þarna. Ég er ekki alin upp hjá listafólki en ég hafði alltaf haft gaman af að dunda mér við eitthvað skapandi og ekki alltaf eftir einhverjum formúlum heldur eftir mínu höfði.“
Íslenskar konur eiga sér merkilega sögu og hafa farið víða
Þú hefur verið með þætti á RÚV, efnið er oft sérstakt og áhugavert og meður veltir því fyrir sér hvernig þú grefur það upp, segðu mér aðeins frá hvar þú finnur þetta efni? „Já, ég hef gaman af að rannsaka hluti og gera um þá útvarpsþætti. Ég gerði til dæmis fyrir örfáum árum þættina Bréfberinn sem hvarf, um sænskan bréfbera sem hvarf skyndilega fyrir nokkrum áratugum, en hann var með tengsl við Ísland. Saga kvenna er efni sem stendur mér líka nærri. Ég hef alltaf haft mjög mikinn áhuga á kvennasögu og ævisögum yfirhöfuð, nýjum eða gömlum, þetta er bara heiðarleg forvitni um fólk og fortíðina. Ég var, á sínum tíma, að fletta einhverju upp um íslenskar konur í Kaupmannahöfn í gamalli íbúaskrá en amma mannsins míns hafði búið þar og okkur langaði að vita hvaða fólki hún var hjá. Hún var send til að vera stúlka í húsi til að læra svokallaðar kvenlegar dyggðir; að dekka borð og búa til eitthvað matarkyns áður en hún gifti sig eins og margar íslenskar stúlkur gerðu. Ég fór eitthvað að leita að því hvar hún hefði búið í borginni og rakst þá á ótalmörg nöfn íslenskra kvenna, miklu fleiri en ég hafði búist við. Þarna voru auðvitað líka nöfn íslenskra karla frá um 1910-1920 sem störfuðu sem verkamenn eða iðnaðarmenn, barþjónar og í allskonar störfum. En konurnar voru saumakonur, vinnukonur, hattadömur, búðastúlkur, vændiskonur og í allskonar störfum. Ég komst síðan að því að það voru fleiri íslenskar konur en karlar í Kaupmannahöfn upp úr aldamótunum 1900. Sumar þessara kvenna hef ég síðan gert útvarpsþætti um.

Guðný Eyjólfsdóttir ung að árum.
Áhugavert að spá í „venjulegt fólk“
Þórdís hefur í grúski sínu fundið margar áhugaverðar sögur og fólk sem hún hefur gert þætti um. „Ég gerði þættina Sjáandinn á Vesturbrú um Guðnýju Eyjólfsdóttur sem var systir Jósefínu spákonu á Grímsstaðarholti, sem Einar Kárason gerði ódauðlega, en þær fóru saman systurnar til Kaupmannahafnar um tvítugt og sneru reyndar heim saman um ári síðar, en Guðný fór fljótlega aftur til Danmerkur og bjó þar alla ævi. Ég fór að rekja sögu Guðnýjar og komst að því að hún var þekkt spákona og heilari yfirstéttarinnar og fjölmargra listamanna í Kaupmannahöfn og tengdist frægasta óleysta morðmáli Danmerkur, sem mikið hefur verið fjallað um, en hún dó 1972. Á Íslandi hafði svo til enginn heyrt um Guðnýju nema fjölskylda hennar og örfá önnur. Þessi leit að íslenskum konum í Kaupmannahöfn, og reyndar líka íslenskum körlum og fjölmörgu fólki sem tengist þeim beint og óbeint, er eitthvað sem ég hef svo bara haldið áfram með og ég er alltaf með augun opin fyrir áhugaverðu fólki og sögum. Söfn eru stöðugt að láta skanna fleiri og fleiri skjöl og skrár svo það er orðið þægilegra að finna eitthvað um fólk, en síðan pantar maður allskonar skjöl á skjalasöfnum og les á lestrarsölum og sér hvað þau afhjúpa. Svo eru Sarpur og fleiri myndasöfn ómissandi, þannig að þetta er orðið aðgengilegra en var og maður þarf, sem betur fer, ekki alltaf að sitja inni á safni og fletta torlæsum pappírum, þó að það sé oft óumflýjanlegt. Stundum kemur lítið út úr því að grúska svona, annað en skemmtunin, en oft finn ég eitthvað mjög áhugavert sem er kannski allt annað en það sem ég var að leita að. Ég er ekki sagnfræðingur og nálgast verkefnin kannski svolítið út frá öðrum þáttum en snjallir sagnfræðingar myndu gera, en ég á vinkonur sem eru sagnfræðingar og spyr þær stundum ráða við rannsóknir. Skjalaverðir á söfnum eru líka mjög hjálpsamt fólk.
Við höfum öll heyrt hitt og þetta um sömu karlana sem dvöldu í Danmörku, þeir voru oft stúdentar sem komust til einhverra metorða og eina og eina konu, eins og Björgu Þorláksson og Laufeyju Valdimarsdóttir kannast fólk við, en mér finnst skemmtilegra að spá í „venjulegt fólk“, þ.e. ef það er til venjulegt fólk, en þá meina ég alþýðufólk sem var ekki í háum embættum eða af efnuðu fólki. Þessu fólki fylgir oft að það skrifaði lítið eða jafnvel ekkert og skildi ekki eftir sig skjalasöfn, þannig að það þarf að nota hugmyndaflug og fara krókaleiðir til að komast að einhverju um það.
Hvað hefur verið áhugaverðast á ferlinum hingað til, er eitthvað sem heillar þig meira en annað? „Mér finnst mjög gaman skrifa sögur um hversdagslega fólkið í kringum okkur og grafa eitthvað áhugavert upp um konur í fortíðinni en svo finnst mér líka mjög gaman að skrifa fyrir krakka. Ég skrifaði fjórar bækur um félaga sem heita Randalín og Mundi og úr því varð jóladagatal fyrir nokkrum árum – ég held að það hafi verið fyrsta jóladagatalið sem RÚV gerði í 15 ár. Svo hef ég skrifað unglingabækur í samvinnu við Hildi Knútsdóttur. Það er að sumu leyti“ segir hún með áherslu „mjög ólíkt að skrifa fyrir börn og fullorðna en gaman að gera hvorutveggja ef manni finnst gaman að hafa svolitla tilbreytingu. Þegar skrifað er fyrir börn þá þarf höfundur að hafa lesendur sína í huga, það er ekki hægt að bjóða krökkum upp á hvaða orðfæri og atburði sem er, á meðan hægt er að láta flest gossa þegar skrifað er fyrir fullorðna lesendur. Barnabækur þurfa að vera skemmtilegar og spennandi og það þarf líka að segja börnum eitthvað nýtt. Mér finnst að foreldrar þurfi einnig að hafa gaman af sögunum. Barnabók þarf helst að vera á nokkrum plönum, þannig eru klassísk verk eins og t.d. Lísa í Undralandi eða Múmínálfarnir. Þá á ég við að bækurnar þurfa að höfða samtímis til lesenda á ólíkum aldri sem skilja þær ekki endilega á sama hátt. Einar Áskell er líka klassík sem foreldrar og börn tengja við með ólíkum hætti, en sumar bækurnar um hann eru reyndar svo skrýtnar að maður hugsar – er eitthvert barn sem skilur þetta?,“ segir Þórdís og hlær.
Vantar meira og fjölbreyttara efni fyrir börn og unglinga 
Þórdís segir mjög lítið efni gefið út fyrir börn og unglinga, sem sé á vissan hátt skiljanlegt því þjóðin sé fámenn. „Þegar maður kemur hins vegar í barnabókadeildir bókabúða erlendis þá sér maður að munurinn er svakalega mikill og starfsfólk íslenskra bókasafna kvartar undan skorti á fjölbreyttu lesefni á íslensku. Ég var í skólaheimsókn um daginn og það var einmitt skólabókasafnsfræðingur sem sagði að það væri bæði svo sorglega lítið sem væri gefið út af íslensku efni fyrir unglinga og að auki eru sums staðar ekki einu sinni settir peningar í að kaupa þá nýju titla sem þó eru í boði. Mig minnir að sex frumsamdar ungmennabækur hafi komið út í fyrra á íslensku, en unglingur sem hefur gaman af að lesa klárar svo fáar bækur á engum tíma.
Svo hafa krakkar ekki allir sama smekk. Sum börn vilja fantasíur önnur raunsæissögur, sumir krakkar vilja langar bækur, aðrir stuttar sögur og þetta endar mögulegs með því að þau fara bara að lesa á ensku ef þau hafa mikinn áhuga en finna ekkert lesefni á íslensku sem þeim líkar. Yngri krakkar eru margir duglegir að lesa en svo þarf að kynda undir áhugann hjá börnum þegar þau nálgast unglingsaldur því þau detta oft svolítið útúr bókalestri
Það er líka til einskis að tala um að börn þurfi að læra betur íslensku ef það eru engar bækur handa þeim. Það er voða sætt að fólk hugsi nostalgískt um eigin lestur sem barn en fullorðið fólk skilur oft ekki að börn vilja ekki gamlar bækur. Klassík á borð við Emil í Kattholti og Ronju Ræningjadóttur stendur auðvitað alveg fyrir sínu en mín reynsla er sú að börn hafa takmarkaðan áhuga á gömlum bókum, það er bara allt annar veruleiki í þeim. Bækur fyrir börn í dag verða líka helst að innihalda skemmtilegar myndlýsingar, það þýðir yfirleitt ekki að bjóða krökkum upp á hnausþykkar bækur sem eru bara þétt stafasúpa. Lestur byggir upp lesskilning, hann kemur bara með lestrinum sem hefur áhrif á orðaforða, skilning og færni til að tjá sig. Þetta er bara eins og með íþróttir, fólk þarf að æfa sig til að ná árangri. Kennarar segjast finna fyrir þessu í byrjun skólaárs að lesturinn hafi setið á hakanum yfir sumarið og krökkum farið aftur.
Hvað er í bígerð hjá þér? „Ég er að skrifa bók um Guðnýju Eyjólfsdóttur, spákonu í Kaupmannahöfn, svona sögulega skáldsögu sem ég ætla að reyna að klára í sumar, ljóðin gríp ég eitthvað í og svo er ég að velta fyrir mér nokkrum þýðingum. Ég tók góða skorpu með Tove Ditlevsen fyrir stuttu, þýddi Bernsku, Æsku og Gift, endurminningarbækur hennar. Ætli ég þýði ekki úr sænsku næst, mér finnst ágætt að skipta vinnunni á milli þess að skrifa frumsamda texta og þýða. Anne Carson sagði um daginn að þýðingar væru eins og krossgáta fyrir lengra komna, maður er svolítið eins og að þræða einhverjar perlur upp á band við þýðingavinnuna. Mér finnst ég þurfa að finna mér ákveðna leið þegar ég þýði en þegar ég skrifa eigin texta er ég frjálsari – þetta eru á margan hátt ólík verkefni. Ég er með eina litla þýðingu á þessu ári en það er Jólaboð, Einar Áskell sem kom út í síðustu viku og er nýjasta Einar Áskels bókin. Það fundust fjögur tilbúin handrit þegar hún dó, rithöfundurinn Gunilla Bergström. Þessi bók kom út í Svíþjóð í fyrra og nú er hún komin á íslensku. .
Mér finnst fínt að fólk hlusti á hljóðbækur, en hvað mig varðar þá fara þær svolítið inn um annað eyrað og út um hitt. Ég man betur það sem ég les á pappír en það sem ég hlusta á þannig að ég kýs að kaupa bækur eða fá lánaðar gamaldags pappírsbækur á bókasöfnum. Það er eitthvað mjög notalegt við það að sitja með bók og lesa og að geta flett upp í bók sem maður á í hillunni,“ segir Þórdís.






