Tengdar greinar

Bólusetning gegn Covid 19 hafin

Fjórir starfsmenn heilbrigðisþjónustu voru bólusettir við COVID-19 kl. 9.00 í morgun og voru þar með fyrstir allra til að hljóta bólusetningu hér á landi, segir á vef stjórnarráðsins.  Það segir einnig að Klukkan 10.00 hafi bólusetning á hjúkrunarheimilum hafist.

Þorleifur Hauksson var fyrstur íbúa á hjúkrunarheimili til að fá bólusetningu en hann býr á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð í Reykjavík. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fylgdust með bólusetningu Þorleifs, ásamt starfsfólki Seljahlíðar og fjölmiðlafólki og var tímamótunum vel fagnað af Þorleifi og öðrum viðstöddum.

Heilbrigðisstarfsfólkið sem var bólusett fyrst allra kl. 9.00 í morgun voru þau Krist­ina El­izondo, sjúkra­liði á gjör­gæslu­deild, Krist­ín Gunn­ars­dótt­ir, hjúkr­un­ar­fræðing­ur á gjör­gæslu­deild, Elías Eyþórs­son, sér­náms­lækn­ir í lyflækn­ing­um, og Thelma Guðrún Jóns­dótt­ir, aðstoðarmaður á bráðamót­töku.

Tíuþúsund skammtar af bóluefni Pfizer komu til landsins í gær. Bólusetja þarf hvern og einn tvisvar sinnum og dugir efnið því fyrir 5.000 manns. Flutningar bóluefnisins út um land hófust í morgun, bólusetning framlínustarfsfólks á Landspítala er hafin og eftir hádegi í dag verður framlínustarfsfólk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins bólusett.

Ritstjórn desember 29, 2020 12:32