Pálmi V. Jónsson öldrunarlæknir svarar spurningum um aldurstengda sjúkdóma, eða öldrunarsjúkdóma, á Vísindavef Háskóla Íslands og skrifar þar fróðlega grein sem hér er vitnað óspart í.
Með hugtakinu öldrunarsjúkdómar er átt við sjúkdóma sem fyrst og fremst gera vart við sig á efstu árum og leiða til andlegrar eða líkamlegrar hrörnunar.
Annað hugtak sem vert er að gefa gaum í þessu sambandi er aldurstengdar breytingar. Þá er átt við að allir vefir líkamans sýna einhvers konar breytingar sem tengjast aldri og verða þær meira áberandi eftir því sem fólk eldist. Þessar breytingar hafa allar í för með sér að hámarksgeta minnkar.
Lækkun á hámarks-hjartsláttartíðni með aldri er gott dæmi um aldurstengdar breytingar. Við vissa áreynslu getur hjartsláttartíðni hjá ungum manni farið í 180 til 200 slög á mínútu án þess að honum verði meint af. Hjá níræðum manni væri hins vegar óæskilegt að meira reyndi á hjartað en svo að hjartsláttur færi mikið yfir 100 slög á mínútu. Þetta kemur meðal annars til af því að svokölluð beta-viðtæki í hjartanu hrörna og svara ekki eins vel áreiti og áður.
Aldurstengdar breytingar eru ekki sjúkdómur þó að þær skerði hámarksgetu líkamans. Sem dæmi má nefna að til eru aldraðir einstaklingar sem eru það frískir að þeir hlaupa maraþon. Heimsmet eldri borgara í maraþoni er hins vegar um það bil helmingi lakara en hjá heimsmeistara óháð aldri, en það heimsmet á að jafnaði einhver á aldrinum 20 til 30 ára. Þegar heimsmetið var um 2 klukkustundir og 10 mínútur, þá var heimsmet eldri borgara rúmar fjórar klukkustundir.
Jafnvel þó að aldurstengdar breytingar séu ekki sjúkdómur geta þær breytt ásýnd sjúkdóma. Ofvirkur skjaldkirtill veldur til að mynda gjarnan hraðari hjartslætti, en vegna ofangreindra breytinga á viðtökum í hjarta kemur það ekki fram með sama hætti hjá eldra fólki.
Fáeinir sjúkdómar gera ekki eða síður vart við sig á efri árum. Þannig er fátítt að fólk fái mænusigg eftir fimmtugt. Einnig dregur úr mígreniköstum með aldri og þau verða tiltölulega fátíð.
Flestir sjúkdómar verða hins vegar algengari með aldri. Tíðni krabbameina vex með aldri, en reyndar virðist sú aukning heldur minnka aftur eftir 85 ára aldurinn. Hjarta- og æðasjúkdómar vaxa aftur á móti látlaust upp eftir öllum aldri. Ýmsir hrörnunarsjúkdómar koma fyrst og fremst fram á efri árum og vaxa í nýgengi og algengi með aldri. Dæmi um þessa sjúkdóma eru slitgigt, beinþynning og ýmsir heilabilunarsjúkdómar svo sem Alzheimers-sjúkdómur
Pálmi fjallar einnig í greininni Parkinsons sjúkdóminn og um hormónabreytignar og áhrif þeirra á bæði konur og karla. Niðurlag hennar fjallar síðan um ýmsar fyrirbyggjandi aðgerðir sem geta seinkað framkomu sjúkdóma.
Þar sem ýmsir af þessum aldurstengdu sjúkdómum hafa í för með sér færnitap, auk annarra einkenna, er ljóst að það er mikilvægt markmið að seinka framkomu sjúkdóma með því að ráðast á áhættuþætti. Þetta er ein aðalforsenda þess að enginn ætti að reykja,blóðþrýstingi ætti að halda í skefjum, og mikilvægt sé að blóðfita sé í neðri viðmiðunarmörkum.
Öflugustu forvarnirnar gegn aldurstengdum sjúkdómum reynast vera hæfileg hreyfing og fæðuinntaka sem stuðlar að kjörþyngd. Einnig er mikilvægt að láta fylgjast með helstu áhættuþáttum þeirra sjúkdóma, sem nú þegar er vitað hvernig bregðast má við. Kynhormónameðferð hjá báðum kynjum eða lyf sem byggja á verkunarhætti þeirra, mun að öllum líkindum skila miklu í bættri heilsu á efri árum.
Ef einhverjum kann að þykja þetta litlaust líf, þá er rétt að minna á að sterk félags- og fjölskyldutengsl og hófleg rauðvínsneysla stuðla einnig að bættu lífi og lífsgæðum.
Grein Pálma er eins og áður sagði á Vísindavef Háskóla Íslands og til að lesa hana alla má smella hér.