Tveir magnaðir tónlistarmenn í Hannesarholti

Romain Collin píanóleikari og tónskáld og trompetleikarinn Ari Bragi Kárason bjóða upp á einstaka tónleika í tónleikasal Hannesarholts, Hljóðbergi, miðvikudaginn 24. júlí kl.20.00. Ari kynnti Romain fyrir Hannesarholti og Íslandi árið 2021, en sú kynning markaði upphaf þess að Romain hefur árlega haft vetrardvöl í gestaíbúð Hannesarholts. Það er mikill fengur að fá þennan frábæra tónlistamann hingað og njóta tónlistar hans í tónleikasal Hannesarholts. Nú mætast þessir tveir listamenn aftur og enginn ætti að láta þessa tónleika framhjá sér fara. Miðasala á tix.is 
Ritstjórn júlí 23, 2024 08:28