Tengdar greinar

    Spennandi sumarlesning

    Stefan Ahnheim er íslenskum sakamálasagnaaðdáendum að góðu kunnur, enda einn allra besti norræni sakamálahöfundurinn. Í Ekki er allt sem sýnist er Fabian Risk víðsfjarri en við kynnumst tvennum hjónum. Carli Wester og konu hans, Helene og þeim Adam Harris og Scarlett. Þetta er velefnað fólk sem ákveður að hafa húsaskipti. Carl og Helene fara í hús hinna í Kaliforníu en Adam og Scarlett í lúxus villu í sænska Skerjagarðinum. Carl og Helene eru á leið í langþráð frí sem öðrum þræði snýst um að færa þau nær hvort öðru. Þau hafa orðið fyrir mikilli sorg og Carl vinnur mikið og hefur því ekki verið til staðar fyrir konu sína.

    Adam er sænskur að uppruna, listamaður og ætlar að setja upp sýningu í Stokkhólmi en Scarlett er bandarísk og nýbúin að missa bróður sinn. Hún er mjög óörugg í sambandinu og finnst eiginmaður sinn fjarlægur þótt hann keppist við að fullvissa hana um ást sína og aðdáun á henni.

    En ekkert er hér sem sýnist. Persónusköpun Stefans er einstaklega góð og hann flettir smátt og smátt ofan af því sem er að gerast undir niðri. Hér eru allir bestu eiginleikar þessa höfundar vel sýnilegir. Samskipti fólks eru í forgrunni, tilfinningar þess og togstreita þegar hagsmunir fara ekki saman. Hann kann vel að byggja upp spennu og hefur áður sýnt að persónur hans eru flóknar, trúverðugar og oft auðvelt að finna til djúprar samúðar með þeim.

    Morð í skíðaparadís

    Viveca Sten er einn virtasti glæpasagnahöfundur Norðurlanda. Mýrarljós er ný bók í seríunni um lögregluna í vetrarparadísinni Åre. Aðalrannsakendurnir eru Hanna og Daníel. Hanna er í helgarfríi með kærasta sínum Henry Sylvester þegar lík ungrar stúlku finnst fyrir utan bústað auðmanns uppi í fjalli fyrir ofan bæinn. Í fyrstu lítur út fyrir að hún hafi orðið úti en lögreglumönnunum finnst eitthvað ekki ganga upp. Innsæið segir þeim að þetta sé morð og Hanna kemur til baka úr fríinu fyrr en hún ætlaði til að taka þátt í rannsókninni.

    Vivecu er einkar að lagið að skapa áhuga á persónum sínum. Daníel er enn að reyna að sætta sig við skilnaðinn frá Idu og það að vera helgarpabbi fyrir Alice og Hanna getur enn ekki treyst neinum karlmanni til fulls og leyft sér að elska eftir að hafa upplifað ótryggð Christians. Anton hefur enn ekki komið út úr skápnum og það er farið að hafa áhrif á samband hans við Carl. Allt þetta gerir söguna dýpri og áhugaverðari og verður þess ekki síður valdandi að lesandanum langar að heyra meira af þessu fólki.

    Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

    Ritstjórn júní 2, 2025 08:04