Vel skóluð í samræðulist

Útskriftarveislur eru í fullum gangi og framundan tími brúðkaupa, grillveislna í garðinum, ættarmóta og annarra samkoma. Stundum er andrúmsloftið í svona boðum vandræðalegt til að byrja með. Hér eru samankomnar tvær og stundum fleiri fjölskyldur, nokkrir vinahópar og samstarfsfélagar úr fleiri en einu fyrirtæki. Er þá ekki gott að vita hvernig best er að byrja samræður við ókunnuga og halda þeim gangandi?

Elísabet II Englandsdrottning var þekkt fyrir hversu góður gestgjafi hún var og eitt af því sem um var talað var hve alþýðleg hún var og hversu auðveldlega henni tókst að fá fólk til að opna sig. Hún notaði nokkrar aðferðir til að fá fólk til að opna sig. Fyrst af öllu var hún vön að slá gestum sínum gullhamra fyrir eitthvað. Það gat verið falleg næla í barminum, bindi í smekklegum lit, hvernig viðkomandi bar sig eða hve lipurlega hann breiddi úr servíettunni. Hún fann alltaf einhverja góða uppsprettu og þar með byrjaði ísinn að bresta. Fólk fann hlýjuna og slakaði á í návist hennar.

Hún hafði líka sannan áhuga á fólki og spurði það gjarnan út starf þess, áhugamál og jafnvel persónulega hagi. Við hvað starfar þú? Hefur þú áhuga á fótbolta? Áttu börn? Allt eru þetta spurningar til þess fallnar að fá fólk til að tala og þarna er leið til að koma af stað samræðum, hrista saman hópinn. Elísabet naut þess auðvitað að hafa áratuga reynslu af móttökum og veisluhöldum en menn giska á að hún hafi staðið fyrir nokkur tugum ef ekki hundruðum þúsunda slíkra á sjötíu ára valdatíma sínum.

Ekkert að því að tala um veðrið

Við Íslendingar eigum auðvitað okkar eigin samræðuhefð og klassískt umræðuefni. Nefnilega veðrið. Þar er alltaf nóg að tala um og margt hægt að segja. Frá veðrinu er svo hægt að færa sig yfir í utanlandsferðir og veðrið í útlöndum. Svo er alltaf gaman að slúðra svolítið. Er eitthvað að frétta af þekktum einstaklingum? Hver var að skilja, einhver að gifta sig og kannski er barnsvon hjá nýju pari? Slúður er saklaust svo lengi sem það breytist ekki í illmælgi.

Að vera opinn og hafa gaman af spjalli er góður eiginleiki. Sá sem er vel skólaður í samræðulist er ekki að leita eftir að kryfja heimsmálin eða finna lausn á loftslagsvandanum. Hann er fyrst og fremst að skemmta sjálfum sér og öðrum. Hann leitast við að leyfa öðrum að njóta sín líka, er hlýlegur og þægilegur svo auðvelt sé að slaka á í návist hans. Mörgum kann að finnast það lítilfjörlegt að geta spjallað lipurt og af öryggi þá er það ekki öllum gefið. Þótt yfirborðskenndar samræður í boðum virðist ekki merkilegar má ekki gleyma að þær eru oft byrjunin á einhverju nýju og þannig hafa margir hitt maka sinn, besta vininn eða vinkonuna.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.