Einn besti saltfiskréttur allra tíma

Þessi saltfiskréttur er afar bragðgóður. Uppskriftin hefur fylgt blaðamanni Lifðu núna í mörg ár og hann löngu búin að gleyma því hvar hann fékk hana. Það er hins vegar gott að dusta af henni rykið þegar góða gesti ber að garði.

Það sem til þarf fyrir fjóra er:

600 gr. saltfiskur (forsteiktur á pönnu)

olífuolía

500 gr. soðnar kartöflur

100 gr. svartar olífur

Raspið

2 1/2 dl. brauðrasp

3 marin hvítlauksrif

3 msk. söxuð steinselja

Hvít sósa

80 gr. smjör

80 gr. hveiti

1 l mjólk

múskat, salt og pipar. Sósan er gerð eins og venjuleg hvít sósa.

Tómatsósa

1 laukur smátt skorin

4 hvítlauksrif smátt skorin

2 msk. tómatþykkni

250 gr. nýir tómatar eða tómatar úr dós

2 msk. olífuolía

timian

salt og pipar

nokkur sykurkorn

Allt sett í pott og látið malla í um það bil 20 mínútur.

Smyrjið  leirfat með olífuolíu. Sneiðið kartöflurnar og leggið þær á botninn.  Stráiið einum þriðja af raspinum hvítlauknum og steinseljunni yfir. Forsteikið saltfiskinn og rífið fiskinn í bita og leggið yfir kartöflurnar. Dreifið olífunum yfir fiskinn. Hellið hvítu sósunni yfir og því næst tómatsósunni. Dreifið brauðraspinum og restinni af hvítlauknum yfir sósuna. Dreypið olíu yfir raspinn. Bakið í 180 gráðu heitum ofni í 10 til 15 mínútur.

 

 

Ritstjórn febrúar 15, 2019 12:38