Tengdar greinar

Ganga og skoða stytturnar í miðborg Reykjavíkur

Laugardagsganga U3A Reykjavík að þessu sinni er ganga í miðborginni þar sem sögulegar styttur eru skoðaðar. Leiðsögumaður er Birna Halldórsdóttir. Skrá mig hér.

Göngunni milli styttna í miðborg Reykjavíkur má lýsa sem göngu um evrópska og íslenska menningar- og listasögu. Stytturnar eru mikilvæg kennileiti Reykjavíkur og endurspegla sögu þjóðarinnar. Gangan hefst og henni lýkur á Arnarhóli, við styttu Ingólfs Arnarsonar, og mun taka um klukkustund og er auðveld og nóg af bekkjum á leiðinni til að fá sér sæti á og hvílast. Þátttakendur geta aðeins verið 25 talsins og er því nauðsynlegt að skrá sig í gönguna.

Gangan er ein af fimm íslenskum leiðum sem voru skráðar með Wikiloc-appinu í alþjóðlega HeiM verkefninu sem U3A Reykjavík tók þátt í. Hönnuðir leiðar um sögulegar styttur í miðborginni eru Birna Halldórsdóttir, Elsa Ísfold Arnórsdóttir og Þórunn Ólafsdóttir. Nánari upplýsingar um leiðina má finna hér.

Gangan milli sögulegra styttna í miðborginni fylgir eftir tímalínu sögunnar og leiðir okkur milli styttna af okkar áhrifamestu persónum í sögulegu og listrænu samhengi. Listaverkin og höfundar þeirra eru stuttlega kynntir. Flestir þessara listamanna voru menntaðir í listaskólum á meginlandi Evrópu eins og má sjá af verkum þeirra og það er ekki síður áhugavert að sjá áhrif þess á íslenska menningu. Listasafn Reykjavíkur gerði árið 2019 að ári útilistaverka. Smáforriti safnsins „Útilistaverk í Reykjavík“ má hlaða niður ókeypis á snjallsíma.

Ritstjórn október 14, 2021 14:42