Söguganga í Öskjuhlíð: 75 ár frá lokum seinni heimsstyrjaldar

Efnt verður til Sögugöngu um Öskjuhlíð  í tilefni þess að 75 ár eru frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Gengið verður frá bílastæðinu í Fossvogskirkjugarði kl: 17:10, mæting kl: 17:00.

Þann 2. September, á miðvikudaginn, verða 75 ár liðin frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar og í tilefni þess býður Borgarsögusafn Reykjavíkur til sögugöngu um okkar helstu stríðsminjar í Öskjuhlíð. Gangan hefst á bílastæði Fossvogskirkjugarðs þar sem yfir 200 hermenn úr seinni heimsstyrjöldinni eru grafnir í kirkjugarði breska samveldisins. Þaðan verður síðan gengið um skotbirgi og mannvirki frá seinni heimsstyrjöldinni verða skoðuð ásamt því sem fjallað verður um sögu stríðsáranna.

Gísli Jökull Gíslason mun leiða gönguna en hann hefur skrifað bækurnar „Föðurlandsstríðið mikla og María Mitrofanova“ og bókina „Iceland in World War II – A Blessed War“. Jökull er fróður um tímabilið og hefur leitt slíkar göngur áður.

Gangan er ekki erfið og tekur um tvær klukkustundir. Mælt er með að fólk sé í þægilegum skóm og hluti leiðarinnar eru um malarstíga. Þátttaka er ókeypis.

Miðað verður við sóttvarnareglur, með hámarksfjölda 100 manns og að fólk virði 2 metra fjarlægðarreglu. Þátttakendur eru hvattir til að fara á Facebook síðu Borgarsögusafns og bóka sig á viðburðinn þar.

 

 

Ritstjórn ágúst 31, 2020 17:52