Hin margbrotna og sterka Jane Fonda

Jane Fonda syrgir nú fyrrverandi mann sinn Ted Turner sem lést 6. maí síðastliðinn. Ástarsamband þeirra vakti gríðarlega athygli á sínum tíma og sömuleiðis skilnaðurinn. Þeim tókst að skilja í fullri vinsemd og voru náin. Jane segir að hann hafi gefið henni einmitt það sem hún þurfti, með honum hafi hún í fyrsta sinn upplifað að önnur manneskja virkilega þarfnaðist hennar en á sama tíma hafi hann verið fær um að vera til staðar og styðja hana þegar á þurfti að halda. Jane hefur staðið af sér marga storma og ábyggilega oft ekki veitt af því að eiga bróður að baki sér.

Jane Fonda var þrítug þegar hún lék í kvikmyndinni Barbarella en henni leikstýrði þáverandi eiginmaður hennar, Roger Vadim.

Þessi 89 ára gamla kona er enn sem fyrr hreinskiptin og brennandi af ástríðufullum áhuga fyrir mannréttindum og réttlæti. Það fór ekki vel í Bandaríkjamenn þegar hún reyndi að hafa áhrif á stríðið í Víetnam og af henni birtust myndir í norður-víetnömskum hertrukki. Hún hefur tekið margan slaginn síðan, barist fyrir réttinum þeldökkra, talað gegn rasisma, tekið þátt í Black Lives Matter-hreyfingunni, mótmælt hernaðarbrölti stjórnvalda í landi sínu, talað opinskátt um kynferðislega áreitni og kynbundið ofbeldi í Hollywood og barist fyrir jafnrétti kynjanna. Hún slær ekkert af er alltaf hún sjálf en viðurkennir að leiðin að sátt við sjálfa sig og eigin líkama hafi verið löng og ströng enda lifum við í heimi sem dæmir konur mest eftir útlitinu.

Jane Fonda syrgir nú fyrrverandi eiginmann sinn og vin Ted Turner.

Lífshlaup hinnar glæsilegu Jane Fonda er merkilegt í meira lagi ekki hvað síst vegna þess að hún hefur þroskast og þróast í svo margar áttir að stundum er engu líkara en þar hafi farið nokkrar mismunandi persónur fremur en ein og sama manneskjan. Í gegnum tíðina hefur hún starfað sem fyrirsæta, leikkona og íþróttagúru. Hún varð einnig alræmd fyrir störf sín í þágu pólitískra þrýstihópa í þágu friðar meðan á Víetnamstríðinu stóð. Það er erfitt að átta sig á að hin undurfagra og fullkomna fyrirsæta sé sama Jane og sat með hönd á loftvarnabyssu í Norður-Víetnam og fékk fyrir vikið viðurnefnið Hanoi-Jane í heimalandi sínu.

Jane hefur aldrei farið leynt með að hún hefur gengist undir margar fegrunaraðgerðir og hún segir þær hafa keypt nokkra áratugi til viðbótar á hvíta tjaldinu.

Segir fegrunaraðgerðir kaupa lengri starfsferil

Jane hefur gengist undir margar fegrunaraðgerðir á síðustu árum og fer ekki leynt með að svo sé. Allt frá því hún lék í kvikmyndinni Barbarella árið 1968 var litið á Jane fyrst og fremst sem kyntákn. Hún fann sannarlega fyrir þeim þrýstingi sem það skapaði. Hún er ein af þeim leikkonum í Hollywood sem hefur notið velgengni þótt aldurinn færist yfir og hún fer ekki leynt með að fegrunaraðgerðirnar eigi sinn þátt í því. „Þær hafa keypt mér auka áratugi,“ segir hún. Jafnvel þótt sjónvarpsþættir eins og  Grace and Frankie og kvikmyndir eins og Book Club, eigi að fjalla um eldra fólk og líf þess eru eingöngu valdir leikarar og leikkonur sem bera aldurinn.

Undanfarin ár hefur hún búið ein og eftir skilnaðinn frá Ted Turner sagði hún í viðtali við Opruh Winfrey að hún hafi verið komin hátt á sjötugsaldur þegar henni varð loksins ljóst að hún þyrfti ekki að vera í ástarsambandi. Ástin ætti að gera líf kvenna betra en ekki leggja á þær fjötra. Hún sagði alltof algengt að konur reyndu af alefli að geðjast mönnunum í lífi sínu en gleymdu sjálfum sér. Þetta er góð lexía.

Jane Fonda fæddist 21. desember árið 1937. Hún var dóttir leikarans Henry Fonda og Frances Ford Seymour, yfirstéttarstúlku af einni af ríkustu ættum Bandaríkjanna. Móðir hennar var andlega veik og endaði á að svipta sig lífi inni á geðsjúkrahúsi þegar Jane var 12 ára. Henry var ákaflega lokaður maður og átti mjög erfitt með að sýna börnum sínum ástúð. Bæði Jane og Peter bróðir hennar hafa sagt frá því í viðtölum og ævisögum sínum að hann hafi sjaldan verið heima og þegar hann var á staðnum var hann strangur og fjarlægur.

Á yngri árum starfaði Jane jöfnum höndum sem lekkona og fyrirsæta.

Las um sjálfsmorð móður sinnar í tímariti

Systkinunum var ekki sagt hvernig dauða móður þeirra bar að og Jane komst að því þegar hún las grein um föður sinn í kvikmyndatímariti. Enginn talaði um þetta við hana og hún varð að bera það ein fram á fullorðinsár. Hún varð fyrir kynferðislegri misnotkun sem barn og því gat hún heldur ekki sagt frá og sú reynsla fylgdi henni langt fram á fullorðinsár. Hún segir að í ævisögu sinni að það hafi ekki verið fyrr en hún var komin á sextugsaldur þá gift Ted Turner að henni tókst að sættast við og vera að fullu í líkama sínum með karlmanni. Hún segir að fram að því hafi hún alltaf upplifað „disembodiment“ eða rof milli hugar og líkama þegar hún var í nánum samböndum.

Í viðtölum hefur hún oft talað um hversu sárt sér þyki að karlmenn virðist ekki gera sér grein fyrir hvaða áhrif kynbundið ofbeldi hafi á stúlkur og konur. Þeim finnist það sem þeir gera ekki tiltökumál en það hafi djúpstæð áhrif á þann sem fyrir því verður og sumir nái sér aldrei til fulls. Snemma varð Jane meðvituð um kynjahallann í sínum bransa líkt og í öðrum og hún reyndi allt hvað hún gat að hafa áhrif til aukins jafnréttis innan Hollywood þótt við ramman reip væri að draga á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar þegar hún var að byggja upp sinn feril. Árið 1980 framleiddi hún og lék í myndinni 9 to 5 einmitt til að vekja athygli á misréttinu á vinnumarkaði. Myndin sló í gegn þótt aðrir framleiðendur hafi ekki spáð henni góðu gengi.

Á yngri árum vann hún jöfnum höndum í kvikmyndum og sem fyrirsæta en leiddist alltaf hversu illa henni gekk að sannfæra menn um að hún væri fær um fleira en leika kyntákn. Það var ekki fyrr en leið á ferilinn að henni tókst að landa bitstæðum hlutverkum, nefna má Coming Home, They Kill Horses Don’t They, The China Syndrome og On Golden Pond. Jane Fonda hefur tvisvar fengið Óskarsverðlaunin sem besta leikkona í aðalhlutverki og verið tilnefnd fimm sinnum til viðbótar.

Á níunda áratug síðustu aldar gerði Jane vinsæl líkamsræktarmyndbönd. Fyrir örfáum árum gerði hún fleiri slík en þá fyrir eldra fólk.

Líkamsræktargúrú bæði fyrr og nú

Á níunda áratug síðustu aldar gerði hún líkamsræktarmyndbönd sem flugu um allan heim og Jane Fonda leikfimi varð vinsæl leið til að halda sér í formi. Enn í dag gerir hún jóga á hverjum degi og stundar pilates. Fyrir nokkrum árum gerði hún svo ný myndbönd með leikfimi fyrir eldra fólk. Og hún er heldur ekki hætt að skipta sér af pólitík. Hún er svarinn andstæðingur Trumps og hefur talað gegn stjórn hans, einkum stefnu hennar í mannréttindamálum. Eitt af því sem hún gerði meðan á kosningabaráttunni stóð þegar síðast var kosinn nýr forseti í Bandaríkjunum var að ganga um þar sem hún var stödd og banka upp á hjá þeim sem voru með stuðningsskilti við Trump uppi og reyna sannfæra þá um að hann væri ekki heppilegur valkostur. Þótt hún syrgi nú vin sinn og fyrrverandi eiginmann er engan bilbug á Jane Fonda að finna. Hún er enn að ferðast um flytja fyrirlestra og tala að baráttufundum og svo er hún að velta fyrir sér að endurgera myndina 9 to 5 með leikkonum sem í dag eru að skapa sér feril í kvikmyndabransanum.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.