Tengdar greinar

Hvar ert þú í forgangsröðinni?

Sóttvarnalæknir hefur í samráði við heilbrigðisráðherra ákveðið hvaða hópar munu njóta forgangs við bólusetningu við Covid 19. Eins og fram hefur komið í fréttum er bólusetningin hafin og ekki úr vegi að rifja upp í hvaða röð ákveðnir hópar verða bólusettir, en þessar upplýsingar eru fengnar af vefnum Covid.is

 

Hópur 1

Heilbrigðisstarfsfólk og annað starfsfólk sem starfar á bráðamóttökum og gjörgæsludeildum sjúkrahúsa Landspítala og gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri.

 

Hópur 2

Heilbrigðisstarfsfólk á COVID-19 göngudeild og legudeildum fyrir sjúklinga sem smitast hafa af COVID-19.

 

Hópur 3

Einstaklingar sem dvelja á hjúkrunar- og dvalarheimilum og öldrunardeildum sjúkrahúsa.

 

Hópur 4

Sjúkraflutningamenn, bráðatæknar, starfsmenn Landhelgisgæslunnar,  starfsmenn slökkviliðsins, fangaverðir, útkalls lögreglumenn.

 

Hópur 5

Heilbrigðisstarfsfólk sem sinna sjúklingum með beinum hætti og nauðsynlegt er að fái bólusetningu.

 

Hópur 6

60 ára og eldri.

 

Hópur 7

Einstaklingar með undirliggjandi langvinna sjúkdóma sem eru í sérstökum áhættuhópi.

 

Hópur 8

Starfsfólk leik- grunn- og framhaldsskóla og tiltekið starfsfólk félags- og velferðarþjónustu.

 

Hópur 9

Einstaklingar sem eru í viðkvæmri stöðu vegna félagslegra- og efnahagslegra aðstæðna.

 

Hópur 10

Allir aðrir sem óska bólusetningar.

 

 

Ritstjórn desember 29, 2020 16:41