500 g smáar kartöflur með hýði
2 litlir laukar, skornir í ræmur
3 hvítlauksrif, skorin í örþunnar sneiðar
1/2 dl ólífuolía
1 tsk. timjan
1/2 tsk. salt
1/2 tsk. svartur pipar
200 g geitaostur (hér má einnig nota mozzarella-, brie- eða camembertost ef vill)
Sneiðið kartöflurnar þunnt. Hitið olíuna á pönnu og mýkið laukinn og hvítlaukinn. Setjið kartöflusneiðarnar á pönnuna ásamt kryddinu. Steikið við vægan hita í 10 mínútur. Skiptið lauknum og kartöflunum jafnt niður á pítsubotnana. Myljið geitaostinn gróft yfir. Bakið í miðjum ofni í 10-12 mínútur á hæstu mögulegu stillingu.
Hér að neðan er góð uppskrift að pítsadeigi en hægt er að kaupa deig tilbúið í stórmörkuðum ef vill.
1 pk. þurrger
3 dl vatn
2 msk. olía
450 g heilhveiti
Látið gerið í vatnið og olíuna og látið standa þar til freyðir. Blandið hveitinu út í og hnoðið saman. Látið standa á volgum stað og látið hefast í 1 klst. Hitið ofninn á hæstu mögulegu stillingu. Hnoðið deigið að nýju. Skiptið deiginu í tvennt, fletjið út og látið á bökunarpappír. Látið áleggið á botnana.