Leifur Kolbeinsson yfirmatreiðslumaður á Marshall veitingahúsi + bar á heiðurinn af þessari einföldu en fljótgerðu bleikjuuppskrift. Uppskriftina fundum við á vefnum Fiskur í matinn en þar er að finna margar góðar fiskuppskriftir. Á síðunni er líka að finna þessa skemmtilegu staðreynd um bleikju: Stærsta bleikja sem veiðst hefur á Íslandi var 87,5 cm að lengd og um 10 kg að þyngd en tegundin verður þó sjaldnast mikið þyngri en 500g. En þá að uppskriftinni þetta er það sem tilþarf.
800 gr bleikja
60 ml smjör
60 ml ólífuolía
6 hvítlauksgeirar fínsaxaðir
Safi úr ½ sítrónu
1 tsk. reykt paprikukrydd
½ tsk chili flögur
Salt og pipar
Bræðið smjörið og blandið ólífuolíunni saman við. Setjið hvítlauk, chili, paprikukrydd, salt og pipar saman við ásamt safanum úr sítrónunni. Hitið varlega þar til laukurinn er eldaður. Hellið yfir fiskinn og bakið í vel heitum ofni við 220°C í u.þ.b. 6 mín. Berið fram með t.d. með hrásalti, kartöflum eða því sem ykkur finnst best passa.