Tengdar greinar

Sælgætisstöng sem óhætt er að bjóða hverjum sem er

Til þess að við fáum ekki samviskubit þegar okkur langar að gefa gestum okkar, sér í lagi barnabörnum, sælgæti þá er tilvalið að vera búinn að útbúa þessar sælgætisstangir sem undantekningarlaust falla í kramið, sérstaklega hjá ungviðinu.

1 bolli granola eða kornflex

1 bolli haframjöl

1/2 bolli hveiti

50 g hakkaðar heslihnetur

1/2 boll rúsínur

1 egg

3 tsk. ólífuolía

3 tsk. hunang

1/2 tsk. kanill

1 tsk. sykur

Hitið ofninn í 170 gráður. Setjið bökunarpappír í botninn í ferköntuðu, eldföstu formi.  Látið öll þurrefnin saman í skál og blandið vel. Hrærið saman eggi, hunangi, olíu og kanil. Blandið eggjahrærunni saman við blönduna og þrýstið henni niður í formið. Bakið í um 25 – 30 mínútur. Skerið í hæfilega bita og pakkið inn í plastfilmu. Hægt er að frysta og geyma í allt að þrjá mánuði.

Ritstjórn júlí 2, 2022 20:14