Stuðla að fátækt og rýra traust á lífeyrissjóðum

Félag eldri borgara í Reykjavík hélt aðalfund sinn í vikunni. Þar var gerð samþykkt þar sem fagnað er framkominni kröfu ASÍ um að minnka skerðingu almannatrygginga vegna lífeyris frá lífeyrissjóðum. Samþykktin hljóðar þannig:

Aðalfundur FEB 19.febrúar 2019 fagnar framkominni kröfu stéttarfélaga og sambanda innan ASÍ um að stigið verði ákveðið skref til lækkunar á skerðingu almannatrygginga úr 45% í 30% vegna lífeyris frá lífeyrissjóðum.

Sú óréttláta skerðing sem viðgengst í dag á sér ekkert fordæmi í þeim löndum sem við berum okkur saman við og stuðlar að fátækt meðal eldri borgara og rýrir traust á lífeyrissjóðum.

Einnig leggur fundurinn áherslu á að tryggður verði jöfnuður milli lífeyrisþega gagnvart almannatryggingum, vegna lífeyris frá lífeyrissjóðum sem tilkominn er vegna skylduiðgjalds, hvort sem lífeyrir kemur úr samtryggingu eða séreign.

Fundurinn leggur allt traust sitt á að ASÍ fylgi kröfunni fast eftir í viðræðum við stjórnvöld og ekki verði hvikað frá henni fyrr en ásættanleg niðurstaða fæst.

Ritstjórn febrúar 21, 2019 08:45