Mamma bakar enn og aftur, segir Anna Björk Eðvarðsdóttir á matarblogginu sínu og dregur uppúr pússi sínu þessa dásamlega þreföldu súkkulaðisælu, sem hún segir að sé hreint út sagt frábær. Í henni sé allt það súkkulaði sem súkkulaðisjúklinginn dreymir um, hvítt- mjólkur- og dökkt súkkulaði. Hljómar það ekki næstum eins og himnaríki…
Það geta menn reynt á sjálfum sér. En uppskriftin af kökunni sem er ætluð fyrir 6-8 manns er þannig:
150 gr. suðusúkkulaði
40 gr. rjómasúkkulaði
170 gr. smjör
3 egg
245 gr. hrásykur
2 tsk. vanilludropar
150 gr. hveiti
Salt á hnifsoddi
150 gr. hvítt súkkulaði, gróf saxað
Meðlæti:
Blönduð fersk ber
Þeyttur rjómi eða vanillu ís
Aðferðin: Ofninn er hitaður í 180°C. Lausbotna form er smurt að innan og klætt með bökunarpappír. Suðusúkkulaði, rjómasúkkulaði og smjör er brætt saman í potti. Eggin og hrásykurinn eru þeytt saman, en ekki of mikið, síðan er vanillu-dropunum bætt útí. Hveitið er sigtað útí eggjahræruna + salt svo er brædda súkkulaðinu bætt útí, og að síðustu grófsaxaða hvíta súkkulaðinu. Kakan er bökuð i 30-40 mín. og borin fram með ferskum berjum, ís eða þeytum rjóma.