Réttur fyrir fjóra
8 kjúklingabaunabuff, t.d. frá Móður náttúru
ferskt salat
2 msk. ólífuolía
2 sætar kartöflur, skornar í bita
salt og pipar
Hitið ofninn í 180°C og raðið sætu kartöflubitunum á plötu. Hellið olíunni yfir og bakið í 30-40 mínútur. Meðhöndlið buffin samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Berið buffin fram með sætu kartöflunum, salati og kóríanderpestói (sjá uppskrift)
ferskt kóríander, u.þ.b. 3 lúkur, má skipta út fyrir basil ef vill
2 hvítlauksrif
50 g furuhnetur
50 g parmesanostur
1 1/2 dl ólífuolía
1 tsk. hunang
salt og pipar
Setjið allt í matvinnsluvél og maukið. Grænu kryddjurtirnar eins og kóríander og basil gera litinn á sósunni unaðslega fallegan og sósuna sérlega lystuga. Fyrir utan það er vitað að litsterkt grænmeti er sérstaklega hollt svo þegar við getum innbyrt hollustuna á svona einfalda hátt er lífið ljúft!