Opnaðu augun fyrir öðru en sjálfri/sjálfum þér

Iris Murdoch var breskur heimspekingur og rithöfundur. Grunnhugmyndir hennar gengu út á að menn væru í eðli sínu eigingjarnir en það væru leiðir til að draga úr sjálfselskunni og að allir menn hefðu gott af því að gera það. Hún taldi að náttúran og listin gætu hjálpað okkur til að opna fyrir aukna hlýju og samkennd. Hún segir að þegar fólk njóti listar, horfi á málverk, hlusti á tónlist, horfi á leikrit eða lesi bók sé það fyrst og fremst að þjóna sjálfu sér.

Iris Murdoch

Góð listaverk geti hins vegar opnað okkur nýja sýn á heiminn, endurspeglað raunveruleikann og aðstæður annarra. Náttúran á hinn bóginn kenni okkur að opna augun fyrir umhverfinu og því smáa í tilverunni. En að mati Irisar náum við aðeins að þroskast og verða siðferðilega betri manneskjur ef við einbeitum okkur að öðru fólki, lífverum eða hlutum og lokumst ekki inni í eigin sjálfi. Auk heimspekirita skrifaði Iris Murdoch tuttugu skáldsögur og fékk Booker-verðlaunin fyrir, The Sea, the Sea.

Hún fæddist í Dublin árið 1919 en flutti til Englands með foreldrum sínum þegar hún var barn að aldri. Hún lærði klassískar bókmenntir, sagnfræði fornaldar og heimspeki í Somerville-háskóla í Oxford en flutti sig síðar til Cambridge og lauk þar framhaldsnámi í heimspeki. Árið 1948 fékk hún kennarastöðu við St. Anna‘s College í Oxford og kenndi heimspeki. Árið 1956 giftist hún John Bayley, prófessor, rithöfundi og bókmenntagagnrýnanda. Iris greindist með Alzheimer árið 1995 og dó árið 1999, þá 79 ára gömul. Síðar það ár gaf John út bókina Elegy for Iris, minningabók um árin þeirra saman, og árið 2001 var frumsýnd kvikmynd gerð eftir bókinni með þeim Kate Winslet og Judi Dench í hlutverki Irisar á mismunandi æviskeiðum.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.