Hvenær hættum við eiginlega að leika okkur? Sumir geta með sanni sagt aldrei en aðrir gleyma þegar skyldur fullorðinsáranna færast yfir hversu gaman var að leika sér. Það er synd vegna þess að leikur er góð líkamsrækt og með því að taka þátt í leikjum með börnunum sínum, fjölskyldumeðlimum og vinum er hægt að slá tvær flugur í einu höggi og fá góða þjálfun meðan maður skemmtir sér.
Sipp
Margir krakkar ná ótrúlegri leikni með sippubandið og fólk sem æfir hnefaleika veit að fátt jafnast á við það til að bæta samhæfingu hugar og líkama. Það er því algjör óþarfi að gefa sippubandinu frí. Að hoppa er fljótleg og góð leið til að byggja upp vöðva og hoppin styrkja beinin. Nú þegar sólin er farin að skína ættu allir að grípa sippubandið og fara út að sippa.
Húlahringurinn
Munið þið húlaæðið? Á öllum skólalóðum, bílastæðum við blokkir og heimkeyrslu að húsum var eitt sinn hópur barna með húlahringi að æfa sig. Hringurinn snerist í mittinu, á lærunum, um hálsinn og jafnvel í hnésbótunum og kálfunum. Það þarf ekki svo mikla leikni en húlahringurinn er frábært líkamsræktartæki, æfir jafnvægi, styrkir vöðva og liðkar allan líkamann. Fínt að rifja upp gamla takta og hendast út með húlahring.
Boltaleikir
Að elta bolta er góð skemmtun og fín líkamsrækt. Fótbolti, handbolti, körfubolti og jafnvel brennó og kíló eru fínir leikir til að halda við þoli og einbeitingu. Við getum kennt barnabörnunum brennó og kíló eða spilað við þau þann boltaleik sem þeim hugnast best.
Feluleikur
Sumarið er tíminn til að njóta útiveru en það er hægt að gera meira. Náttúran býður upp á fjölmargar leiðir til að leika sér. Til dæmis má fara í feluleik í skóginum eða hrauninu. Þá getur verið gaman að hafa fjölskylduhundinn með og kenna honum að leita.
Líkamsræktartæki
Víða hefur verið komið fyrir líkamsræktartækjum á útvistarsvæðum. Þau gefa færi á gera æfingar sem maður áður stundaði í klifrugrindinni á róló. Um að gera að prófa.
Jafnvægi
Fátt æfir jafnvægi betur og meira en að stikla á steinum úti í á eða stökkva milli þúfna. Slíkar æfingar úr æsku má ástunda þótt aldurinn færist yfir en muna að enginn er verri þótt hann vökni og það er fínt að æfa sig að detta í mjúkan móa.
Að lokum má svo nefna að trampólín eru ekki bara fyrir börn og tennis, badminton og að hoppa í parís eru skemmtilegir leikir.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







