Laðar þú að þér lúsmý?

Lúsmý er bitvargur og orðið landlægt á Íslandi og síðastliðið ár fréttist af fyrstu moskítóflugunum hér. Þar með er síðasta vígi Evrópu fallið og Íslendingar svo heppnir að fá viðbót við þann flokk flugna er veldur ertingu og skaða á sumrin. Sumir virðast hins vegar alltaf sleppa við þessa vágesti meðan aðrir laða þessar flugur að sér eins og kotung að krás.

Það er alls engin ímyndun að sumir eru flugnafælur meðan aðrir hinar verstu flugnasugur. Þessir smávöxnu vágestir nota koltvísýring í andardrætti, ylinn frá líkömum fólks og náttúrulega angan húðarinnar til að leiða sig að fórnarlambinu. Þær kunna að velja og vita hvað þær vilja. Vísindarannsóknir sýna að moskítóflugur og mý dregst að koltvísýringi sem menn láta frá sér við útöndun. Þær láta þá gastegund leiða sig að manneskjum og þannig finna þær gjarnan sofandi fólk í myrkum sumarbústað. Sum okkar anda aðeins hraðar en aðrir og senda þess vegna frá sér meira magn koltvísýrings á mínútu og það auðveldar þessum litlu kvikindum að finna þá. Ef þú ert í þeim hópi getur þú huggað þig við að hraðari andardráttur sýnir hraðari meltingu og þú þess vegna síður líkleg/ur til að fitna.

Sumir eru heitari en aðrir

Flugurnar finna einnig hitann sem manneskjur senda frá sér og það er líka staðreynd að sumir eru heitari en aðrir. Þeir senda frá sér hlýju og yl sem lúsmýið er fljótt að nema og sækja í. Svitnir þú mikið á hið sama við. Flugurnar elska svitann og finna fljótt lykt. Að vísu er líkamslykt manna mjög misjöfn og staðreynd að mýið gerir mikinn mannamun eða lyktarmun. Þær finna til dæmis fljótt ef mjólkursýra er í svitanum en hún blandast oftast þeim líkamsvessa við áreynslu. Fólk á göngu, í leikjum utandyra eða í fjallaferðum getur því búist við að bitmý og moskító sæki í það.

Þeirri kenningu hefur lengi verið haldið á lofti að ákveðnir blóðflokkar séu meira aðlaðandi í hugum flugna en aðrir og það kann að vera eitthvað til í því. Rannsókn frá árinu 2019 sýnir að fólk í O-blóðflokki er oftar bitið en fólki í öðrum blóðflokkum. Það eru sannarlega ekki góðar fréttir því það er algengasti blóðflokkurinn hér á landi. Rétt er þó að benda á fleiri rannsóknir hafa verið gerðar og niðurstöður þeirra eru mjög misvísandi svo enginn blóðflokkur er öruggur og líklega er þeim bara alveg sama hvaða flokki þú tilheyrir. Þær vilja bara blóð.

Bjórdrykkja og bananaát

Ef þú ert í hópi þeirra sem þiggur gjarnan kaldan bjór með grillmatnum á sumrin og þykir gott að fá þér banana fyrir svefninn ættir þú að endurskoða venjur þínar, í það minnsta á svæðum þar sem mikið er um lúsmý. Þær elska nefnilega lyktina af etanóli, virka efninu í áfengum drykkjum og sú sérstaka tegund þess sem er í bjór og bananar auka mjólkursýruútfall með svita frá líkamanum og gera þig þar af leiðandi einstaklega freistandi fyrir blóðþyrstar flugur.

Svartur litur

Svart er kannski ekki vinsælasti sumarliturinn en margir bregða sér engu að síður í svartar flíkur á sumrin. Það kann að hljóma ótrúlega en er engu að síður satt. Mýflugur elska svartan lit og reyndar einnig rauðan. Kannski vegna þess að blóð er rautt.  Þetta var í það minnsta niðurstaða rannsóknar frá árinu 2022 að ef þú klæðist svörtu og bitvargurinn hefur fundið lykt af andardrætti þínum er næsta víst að heill svermur af þeim mun setjast á bera handleggi, fótleggi, háls eða hvar sem hægt er að komast í blóð.

Hvað get ég gert til fæla frá flugur?

Ef þú ert í hópi þeirra sem laðar að þér flugur ættir þú fyrst af öllu að draga mjög úr hreyfingu utandyra meðan flugutíminn stendur sem hæst. Þess minna sem þú svitnar því betra.

Þú getur notað alls konar flugnafælur og þær virka. Í flestum áburðum og flugnaspreyi er virka efnið picaridin. Það hefur sýnt sig að það virkilega virkar.  Þetta efni er unnið úr chrysanthemums eða tryggðarblómum en þau hafa komið sér upp lykt sem fælir frá þær flugur sem þessi blóm vilja ekki en laða að sér aðrar.

Sumar ilmolíur fæla frá flugur. Meðal þeirra eru sítrónugrasolía og lavenderolía. Það gefur einnig góða raun að blanda negul eða kanil í olíu og hafa. í skálum á nokkrum stöðum í húsinu. Þú getur einnig borið þessar olíur á húðina ef þér finnst lyktin af þeim góð.

Slepptu stuttbuxum og stuttermabolum. Þótt það sé heitt getur borgað sig að vera í venjulegum buxum og síðaerma toppum allt sumarið. Það felur þá staði sem flugurnar sækja í og ná helst til eða handleggi og fótleggi. Þetta á einna helst við ef þú ætlar í hjóla-eða gönguferð eða taka þér eitthvað fyrir hendur sem er líklegt til að valda því að þú svitnir. Farðu strax í sturtu og þvoðu af þér svitann eftir að þú kemur heim.

Slepptu ilmvötnum og öðrum ilmgjöfum. Ilmir með blóma- og ávaxtatónum eru sérlega slæmir hvað það varðar að laða að sér flugur. Sama máli gegnir um margvísleg krem sem innihalda ilmefni. Sjampó og næring getur líka skipt máli hvað þetta varðar.

Settu upp viftu eða viftur í húsinu. Ef hreyfing er á loftinu í kringum þig getur það hreinlega sópað kvikindunum burtu og komið í veg fyrir að þær nái til þín. Þær eru litlar og hafa ekki kraft til að fljúga í mótvindi.

Komdu fyrir flugnafælum sem innihalda metofluthrin. Margskonar slíkar græjur eru til. Þær senda frá sér gufur sem flugurnar kunna alls ekki við.