Sá þörf Íslendinga af erlendum uppruna fyrir góðar bækur

Kristín Guðmundsdóttir er matartæknir að mennt og vann við það í nokkur ár. Sumt samstarfsfólk hennar á þeim vinnustöðum var fólk af erlendum uppruna og Kristín tók eftir að þótt margir væru farnir að læra íslensku og kynnu orðið talsvert í málinu vantaði upp á að fólk gæti haldið áfram að bæta við orðaforða sinn og þekkingu. Það vantaði bæði námsefni og lesefni við hæfi. Síðastliðin sjö ár hefur Kristín unnið að því að bæta þar úr og hefur þegar gefið út sjö bækur, kennslubækur og skáldverk. Nú ætlar hún að ráðast í að stofna bókaforlag og auka þannig enn við útgáfuna og safnar fyrir verkefninu á Karolina Fund.

„Ég tók eftir því hve fólk af erlendum uppruna átti erfitt með að finna lestrarefni á íslensku við sitt hæfi – flestar bækur voru annaðhvort barnabækur eða á erfiðu og gömlu máli,“ segir hún. „Þar sá ég skýrt tækifæri til að gera gagn. Ég ákvað að bæta við mig skrifstofu- og tölvunámi hjá NTV, kláraði stúdentinn og skipti yfir í skrifstofustarf sem mér líkaði vel við. Eftir námskeið hjá Endurmenntun HÍ árið 2008 fór ég að skrifa og á níu handrit að skáldsögum.

Í kringum 2014 byrjaði ég að þróa hugmyndir að léttlestrarbókum í samstarfi við fólk af ýmsum þjóðernum. Fyrsta bókin í þeim flokki, Nýjar slóðir, kom út fyrir jól árið 2019 og gekk vel. Árið 2021 fylgdi Óvænt ferðalag með gagnlegum tilvísunum og síðan þá hef ég gefið út eina bók á ári og byggt upp dyggan hóp fastra viðskiptavina heima og erlendis. Bækurnar eru með tólf stuttum, sjálfstæðum sögum úr ýmsum áttum þar sem flókin orð og það sem fólki finnst skrýtið á Íslandi eru útskýrð.“

Þarf að útskýra orðtök og erfið orð

Kristín sá einnig að margt fólk af erlendum uppruna átti erfitt með að skilja hugsunina að bak ýmsum orðum og orðatiltækjum á íslensku jafnvel þótt það hefði búið hér árum saman. Henni fannst því full ástæða til að gera þar bragarbót og þá kviknaði sú hugmynd að stofna eigið forlag og gefa út bækurnar sínar sjálf.

Auglýsing

„Framtíðarmarkmið forlagsins er að gefa út bækur fyrir fólk af erlendum uppruna á öllum aldri og öllum stigum. Ég hef verið að gefa út bækur og námsefni fyrir fólk af erlendum uppruna sem er komið á þriðja stig og til þess að það væri möguleiki fékk ég hugmyndir af erfiðum orðum og orðasamböndum sem eru útskýrð með tilvísunum. Í hópnum er meðal annars fólki um sextugt sem þekkti ekki sum orð og var búið að búa á Íslandi í fjölda ára. Ein konan um sextugt spurði mig t.d. um orð sem hún var nýbúin að lesa í bók og hreinlega skildi ekki. Ég hyggst líka gefa út bækur fyrir almennan markað,“ segir hún.

Sérðu í þessu viðskiptatækifæri eða er þetta hugsjón?

„Þetta er hugsjón því það er enginn að skrifa fyrir fólk af erlendum uppruna, ekki hvað síst fólk sem er komið á eftirlaunaaldur, stundum vill það gleymast að fólk af erlendum uppruna þekkir ekki bakgrunninn og söguna því þurfa þau á bókum að halda til að æfa sig í íslensku. Þeir sem eru komnir á eftirlaunaaldur þora oft ekki að spyrja um erfið orð sem þau sjá. Áhersla Ýtars verður margþætt: útgáfa á vönduðu námsefni, kennslubókum, lesefni og skáldsögum fyrir fólk af erlendum uppruna á öllum aldri og námsstigum, ásamt grípandi skáldskap fyrir almennan bókamarkað,“ segir hún að lögum.

Síðastliðin sjö ár hafa bækur Kristínar fyrir fólk sem lærir íslensku sem annað mál hlotið frábærar viðtökur á öllum skólastigum, hjá fyrirtækjum, bókasöfnum og einstaklingum heima og erlendis, og víðar. Alls eru níu handrit fyrir almennan markað tilbúin í skrifpoka höfundar og nóg efni til í fleiri. Hér að neðan má sjá þá titla sem eru tilbúnir og tengil á söfnunina á Karolina Fund.

Fyrstu tveir titlarnir í forskotsölu:

  1. Hvað leynist í kistlinum: Léttlestrarbók á 3. stigi íslenskunáms – áttunda bók Kristínar í þessum flokki.
  2. Frá norðri til nýrra heima: Ævintýraleg skáldsaga fyrir almennan markað um ferðalag um fimm heimsálfur.

Slóð á Karolina Fund söfnunina: https://www.karolinafund.com/project/view/6845 [1]