12 kjúklingaleggir
Kryddlögur:
2 hvítlauksrif, pressuð
1 tsk. svartur pipar
2 tsk. villibráðarkrydd
2 msk. Dijon sinnep
½ dl balsamedik
½ tsk. salt
½ dl olía
Látið allt í skál og blandið vel. Skerið tvisvar þversum í hvern legg svo kryddið nái vel inn í kjötið. Látið leggina í bakka og hellið kryddleginum yfir. Látið standa minnst í þrjá tíma en helst yfir nótt. Þegar kjúklingakjöt á beini er grillað er gott að láta kjötið fyrst inn í ofn við 170 gráður í 15 – 20 mínútur og grilla svo á útigrilli. Með þessum rétti er tilvalið að bera fram grillað grænmeti eins og kúrbít, papriku og eggaldin. Það er skorið í sneiðar, penslað með olíu og grillað í smá stund. Gott er að strá svolitlu hvítlaukssalti yfir grænmetið eftir grillun.







