Ingibjörg H. Sverrisdóttir er nýr formaður í Félagi eldri borgara í Reykjavík. Kosningin fór fram á aðalfundi félagsins sem var haldinn í dag. Þrír sóttust eftir formannssætinu. Auk Ingibjargar voru það Borgþór Kjærnested og Haukur Arnþórsson.
Það var troðfullt úr úr dyrum á Hótel Sögu þar sem aðalfundurinn var haldinn. Óttast var á tímabili að fundarmenn færu yfir 500 manna takmarkið og að vísa þyrfti fólki frá, en til þess kom ekki. Setið var við öll borð og aukastólar voru bornir inn í salinn. 433 kusu í formannskjörinu. Haukur Arnþórsson fékk 131 atkvæði, Ingibjörg Sverrisdóttir 262, en Borgþór Kjærnested fékk 29 atkvæði. Einn skilaði auðu. Ingibjörg hlaut þannig rétt rúm 60% greiddra atkvæða.
Á fundinum var einnig kosið í stjórn og varastjórn félagsins, samtals sjö menn.
Til tveggja ára í aðalstjórn voru kjörnir:
Kári Jónasson með 313 atkvæði.
Sigurbjörg Gísladóttir með 300 atkvæði.
Viðar Eggertsson með 299 atkvæði.
Ingibjörg Óskarsdóttir var kosin í aðalstjórn til eins árs og fékk 295 atkvæði.
Þessir voru kjörnir varamenn í stjórnina:
Finnur Birgisson með 223 atkvæði
Haukur Arnþórsson með 184 atkvæði
Sverrir Örn Kaaber með 173 atkvæði.