Nú, þegar margar kjötmáltíðir eru fram undan, er ekki úr vegi að bjóða upp á dýrindis grænmetisrétt sem bæði er gómsætur og hollur. Rétturinn er frábær sem aðalréttur eða sem meðlæti með kjötmáltíð.
4 kúrbítar, sneiddir
10 tómatar, sneiddir
2 paprikur, sitt hvor litur, smátt saxaðar
1 hótellaukur, sneiddur og léttsteiktur
4 hvítlauksrif, sneidd
rósmarín, ferskt
tímían, ferskt
salt og nýmalaður pipar
2 kúlur mozzarella ostur, sneiddar
rifinn mozzarellaostur
1/2 bolli ferskur, nýrifinn parmesan ostur
ólífuolía
Skerið allt grænmetið og léttsteikið laukinn og hvítlaukinn í olíu á pönnu. Látið eitt lag af kúrbítssneiðum í botninn á stóru eldföstu fati. Raðið tómantseniðum ofan á og síðan lauk, þá rifnum mossarella osti og saxaðri papriku. Síðan svolitlu af ferska kryddinu og salt og pipar. Endurtakið þetta og endið á kúrbítssneiðum. Hellið olíunni yfir og bakið við 180°C í 1 klst. Takið út og raðið ferskum mozzarella ostsneiðum ofan á og látið undir grillið í svolitla stund.