Kúrbítur með parmesanosti

2 meðalstórir kúrbítar

½ bolli saxaður laukur

1 hvítlauksrif, saxað

½ msk. smjör

1 stór tómatur, saxaður

4 msk. parmesanostur, rifinn

salt og pipar

Skerið kúrbítinn eftir endilöngu, skafið kjötið úr miðjunni og saxið það smátt. Hitið smjörið á pönnu og snöggsteikið lauk, hvítlauk, tómat og kjötið úr kúrbítnum. Látið malla í smá stund þannig að mesti vökvinn gufi upp. Leggið kúrbítshelmingana í eldfast fat og látið fyllinguna ofan í þá. Stráið parmesan ostinum yfir helmingana. Setjið álpappír yfir fatið og bakið í 30 mínútur við 180°C.

Þessi réttur gengur einn og sér sem góður grænmetisréttur eða sem meðlæti með grilluðu kjöti og þá má skera þá til helminga þannig að úr verði meðlæti fyrir 8.