Líklega fór ekki framhjá neinum hversu mikið dálæti Elísabet Englandsdrottning hafði á nælum. Meðan hún lifði sást hún aldrei opinberlega án þess að ein slík skreytti barm hennar en sumar eiga þessar skrautnælur merka sögu sem bæði tengist persónu drottningar og sögu breska heimsveldisins.
Eitt verðmætasta skartgripasafn í heimi er í eigu bresku konungsfjölskyldunnar. Þar er að finna nokkra frægustu demanta og eðalsteina veraldar og margt fagurra hönnunargripa sem eru listilega smíðaðir. Elísabet átti níutíu og átta nælur. Einna þekktastar eru þær sem gerðar eru úr demöntum úr Cullinan-safninu. Þar á meðal eru Cullinan III, IV og V. Cullinan-náman er fræg fyrir sína stóru og einstaklega fögru demanta. Þeirra á meðal er Cullinan I stærsti demantur sem nokkru sinni hefur fundist eða 3.106, 75 karöt. Hann er í veldisprota Bretlands og hinn frægi Cullinan II-demantur þeirra næststærstur 317,2 karöt er í kórónunni sem konungar og drottningar Bretlands bera. Bræður þeirra þrír rötuðu í nælur.

Cullinan III og IV eru demantarnir í þessari nælu.

Cullinan IV og VIII skreyta þessa nælu.
Cullinan III, IV og V erfði Elísabet eftir ömmu sína, Maríu drottningu en hún lést árið 1953 sama ár og barnabarn hennar var krýnt. Upphaflega voru þeir í lítilli kórónu í hennar eigu sem kölluð var Delhi Durbar Tiara en hún kaus að láta taka hana í sundur og búa til þrjár litlar nælur. Cullinan III og IV eru oft bornar saman og hafa fengið viðurnefnið ömmubitar eða granny chips. Cullinan V er hjartalaga og sérlega stór og fallegur. Þessar nælur eru meðal uppáhaldsgripa Elísabetar II en sú sem hún heldur mest upp á er í laginu eins og blóm með sex krónublöðum, alsett demöntum en hana fékk hún að gjöf frá starfsfólki sínu í Buckingham-höll þegar hún varð tuttugu og eins árs.
Fékk kjark og þor frá nælunni
Hún á fleiri nælur frá ömmu sinni. Eina þeirra fékk María að gjöf daginn sem hún giftist Georg konungi, afa Elísabetar árið 1893. Hún hefur sjaldan sést bera hana en þegar drottningin ávarpaði þjóð sína meðan á kórónafaraldrinum stóð var hún með hana í barminum. Sumir hafa viljað túlkað það sem svo að hún hafi viljað minnast formóður sinnar meðan hún talaði við fólkið sitt á þessum erfiðu tímum en þau María og George ríktu meðan á fyrri heimstyrjöldinni stóð og lögðu mikið á sig við að telja kjark í þjóðina.

Næla Maríu Fedorovnu
Vert er að nefna líka nælu sem keisaraynjan Maria Feodorovna átti en fór á flakk eftir rússnesku byltinguna og aftöku keisarafjölskyldunnar. Maria var dönsk prinsessa, náskyld Elísabetu, sem giftist Alexander III keisara Rússlands. Nælan skipti oft um hendur þar til María, amma Elísabetar, keypti hana árið 1930. Í miðju hennar er glitrandi safír og niður úr honum hangir perla. Nú og svo er hin glæsilega Sannrar ástarhnúturinn, eða True Lover’s Knot. Sú var líka í eigu Maríu og keypt af Garrard-skartgripafyrirtækinu árið 1912.

Sjóræninginn frá Teck.
Sjóræninginn frá Teck er einn flóknasti og viðamesti gripur í eigu drottningarinnar. Teck er hertogadæmi í Þýskalandi en hvort þaðan hafa komið sjóræningjar tókst ekki að fá staðfest. Í miðju nælunnar er stór perla og allt í kringum hana demantar. Í þremur keðjum hanga svo niður úr sjálfri nælunni þrjár perlur en þær má taka burtu og nota sem hálsmen.
Blóm og stjörnur

Nizam of Hyderabad
Nizam of Hyderabad heitir einstaklega falleg blómanæla en hún er svonefnd vegna þess að áður var hún miðjuskraut í kórónu í skartgripasafni drottningar en sú var hönnuð af Cartier árið 1939. Sú var tekin í sundur og gerðir úr henni nokkrir gripir. Jardine Star en hún er kennd við fyrri eiganda sinn, lafði Jardine sem gaf drottninguna hana árið 1981.

Lilja Lundúnaborgar.
Lilju Lundúnaborgar fékk Elísabet að gjöf þegar hún fékk Freedom of the City árið 1947 en það er heiður sem Lundúnaborg veitir fáum en það þýðir að allt stendur heiðursþeganum opið sem borgin hefur upp á að bjóða. Nælan var í senn gjöf til minnast þess tilefnis, tuttugu og eins árs afmælis drottningarinnar og giftingar hennar.

Rós aldarinnar.
Rós aldarinnar eða Centenary Rose er næla sem Elísabet lét gera og gaf móður sinni að gjöf á hundrað ára afmælisdegi hennar árið 2000. Í miðjunni er handmáluð rós en allt í kring raðað demöntum í flókið mynstur. Þegar Elísabet drottningarmóðir lést árið 2002 fékk dóttir hennar næluna og bar hana þegar hún flutti jólaávarp sitt árið 2002 en það ár lést móðir hennar.

Írisin af Chelsea var hönnuð af íslenskum gullsmið, Kristjáni Eyjólfssyni.
Írisin af Chelsea var gjöf Hins konunglega garðyrkjufélags til drottningarinnar. Hún er hönnuð af Kristjáni Eyjólfssyni gullsmið. Henni var færð nælan á sextíu ára krýningarafmæli hennar og Kristján sagði hana innblásna af tákni Chelsea Floral Show sem er árlegur garðyrkjuviðburður á Englandi. Enn ein næla minnir á blóm en sú er kölluð Blómakarfan eða Flower Basket. Hún var gefin drottningu til að fagna fæðingu Karls prins árið 1948. Hún er sú litríkasta af öllum hennar nælum er með rúbínum, demöntum og safírum.

Hrímaða sólblómið.
Margar af nælum Elísabetar eru silfurlitar en þær eru gerðar úr hvítagulli. Sá málmur er í miklu uppáhaldi hjá henni. En Hrímaða sólblómið, Frosted Sunflower er gerð úr átján karata gulli og sett þrjátíu og einum demanti. Hún var hönnuð og smíðuð af Garrard-skartgripafyrirtækinu á áttunda áratug síðustu aldar. Að lokum má nefna nælu með bleikum safírum og demöntum en hún sást fyrst bera hana árið 2015 en augljóst er að hún er í uppáhaldi því alltaf sést Elísabet af og til með hana.
Það er alltaf gaman að skoða glæsilega skartgripi og skoða fallegt og flókið handverk og skartgripasmíð gerir sannarlega kröfur til hagleiks smiðsins. Þótt hér sé aðeins fjallað um lítið brot af nælum drottningarinnar gefur það samt góða hugmynd um hversu verðmætt og athyglisvert það er.
„Írisin af Chelsea var gjöf Hins konunglega garðyrkjufélags til drottningarinnar. Hún er hönnuð af Kristjáni Eyjólfssyni gullsmið.“
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







