
Bjarni Finnsson í essinu sínu.
Uppbygging á huga Bjarna Finnssonar, eða Bjarna í Blómavali, þótt árunum hafi fjölgað. Bjarni byggði Blómaval upp og varð fyrirtækið gífurlega öflugt undir hans stjórn. Hann rak fyrirtækið á tíma leiðtogafundarins 1986 ásamt bróður sínum Kolbeini og eiginkonum þeirra beggja, Hildi Baldursdóttur og Bryndísi Jóhannesdóttur og var fyrirtækið stofanð 1970. Blómaval sá um allt sem laut að blómum og skreytingum á leiðtogafundinum 1986 en á þeim tíma var Blómaval öflugast á sínu sviði.
Seldu Blómaval um aldamótin
Bjarni og meðeigendur hans seldu Blómaval árið 2000. Þá höfðu þau rekið fyrirtækið í rúm 30 ár og kominn tími til að snúa sér að öðru. Bjarni og Hildur hafa átt sér annað heimili á Laugarvatni en þar eiga þau lögbýli sem nefnist Stórholt. Þar hafa þau ræktað trjáplöntur, ber og grænmeti, mest til eigin nota, en nú hafa feðgarnir Bjarni og Baldur Þór hrundið af stað ferðaþjónustufyrirtæki í landi Stórholts.
Byggðu lítil hús til útleigu
Bjarni og Baldur Þór hafa nú byggt lítil hús sem þeir hyggjast leigja út og hefst sú starfsemi upp úr áramótum. Bjarni er ekki af baki
dottinn og heldur enn starfsþreki sínu og unir sér ekki iðjulaus nema í stuttan tíma í einu, alveg eins og þegar mest var að gera í rekstri

Ævintýraleg Skógarhúsin í landi Sórholts.
Blómavals. Þeir feðgar keyptu hlut í lítilli gröfu og segir Baldur Þór að faðir hans hafi grafið með þessari litlu gröfu alla skurði fyrir vatn, rafmagn og afrennsli og gengið frá lögnum eins síns liðs. Baldur hafi sjálfur séð um aðra hluti í uppbyggingu fyrirtækisins. Nú sjái þeir fyrir endann á þeirri uppbyggingu í bili og geti hafið rekstur innan tíðar. Vinnuheiti fyrirtækisins er ,,Skógarhúsin“ og ef að líkum

Bjarni við vinnu sína á litlu skurðgröfunni.
lætur verður þar kominn skógur áður en langt um líður.
Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna, skrifar.







