Þjóð í prumpstöðu

Óttar Guðmundsson geðlæknir.

Óttar Guðmundsson geðlæknir skrifar

Í frægri og umdeildri bók sinni Ástir samlyndra hjóna segir Guðbergur Bergsson frá fólki sem sitji með rassinn í prumpstöðu tilbúið að tjá sig um stór og smá tíðindi. Bókin kom út fyrir rúmlega hálfri öld og mikið hefur breyst síðan í samfélaginu.

Netið hefur opnað þessu málþola fólki áður óþekkta möguleika. Það situr þolinmótt og álútt við tölvuna og bíður færis til að láta ljós sitt skína.

Ólíklegustu atvik leiða til heiftarlegra viðbragða á netinu. Á dögunum kvartaði þjóðin undan illa búnum ferðalöngum á eldstöðvunum með ung börn í fanginu. Löggan takmarkaði þá aðgengi barna að gosinu. Viðbrögðin með miklum látum létu ekki á sér standa. Þessar takmarkanir voru á augabragði orðnar stórhættulegar fyrir þroska barna og samheldni í fjölskyldum. Lögregla og björgunarsveitir fóru í vörn og hröktust undan vindgangi háværra álitsgjafa. Málið leystist sem betur fer af sjálfu sér þegar gosið hætti öllum á óvörum. Enginn þurfti lengur að hafa áhyggjur af grátandi og svöngum börnum við hraunjaðarinn.

Stóra aðstoðarsaksóknaramálið hleypti miklu lífi í þrásetumenn við tölvuna. Margir gengu framaf sjálfum sér í kröfugerðinni um afsögn og refsingar þessa óheppna embættismanns. Stjórnkerfið skalf og nötraði vegna hávaðans.  Aðstoðarsaksóknarinn hefur ekki tjáð sig síðan og embættið veitti honum áminningu fyrir stórkarlalegar athugasemdir.

Elísabet Englandsdrottning dó fyrir skemmstu. Viðbrögð og sorgarfretur netsins voru svo ofsafengin að ókunnugum hefði ekki komið annað í hug en Ísland tilheyrði Breska Heimsveldinu. Ólíklegasta fólk lýsti yfir djúpum harmi vegna fráfalls þessarar aldurhnignu konu. Myndir voru dregnar fram af Betu úr Íslandsheimsókninni með þekktum netverjum. Fréttaþulir Ríkissjónvarpsins klæddust svörtu í tilefni dagsins yfirkomnir af sorg. Sjálfur reyndi ég að brosa gegnum tárin og gladdist fyrir  hönd jafnaldra míns, Karls prins sem loksins er kominn í vinnu. Ég vil votta öllum þessum syrgjendum samúð mína vegna fráfalls Bretadrottningar.

Mig langar til að lýsa yfir djúpu þakklæti og aðdáun á þessu nafnlausa og fórnfúsa fólki sem situr mánuðum saman á öðrum þjóhnappinum við tölvuna. Konur og karlar sem  standa vaktina í blíðu og stríðu tilbúin að leysa vind. Ekkert er þeim óviðkomandi og þau vita alltaf best!

Smám saman eru netverjar að ná tökum á samfélaginu og dómskerfinu. Þeim hefur tekist að gera netið að opinberum gapastokk sem áhrifamönnum stendur stuggur af. Dómstóll götunnar birtir niðurstöður sínar á netinu og úrskurði hans verður ekki áfrýjað. Stjórnkerfið er smám saman að lamast gagnvart áhrifamætti netsins og einstakir embættismenn þora sig ekki að hreyfa af ótta við viðbrögð áhrifamikilla netprumpara.

Enginn vill nefnilega sitja uppi með svarta-pétur eins og aðstoðarsaksóknari gerði á dögunum.

Óttar Guðmundsson september 12, 2022 07:00