Hefurðu gaman af að syngja jólalög?

Jólasöngstund undir yfirskriftinni, Syngjum saman | Jólasöngstund, verður í Borgarbókasafninu, Menningarhúsi í Árbæ, mánudaginn 18. nóvember kl. 16.30-17.15. Þær Anna Sigríður Helgadóttir og Aðalheiður Þorsteinsdóttir leiða sönginn. Anna Sigríður syngur og Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur með. Í fréttatilkynningu frá Borgarbókasafninu segir:

Anna Sigríður Helgadóttir söngkona leiðir jólalegan samsöng við meðleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur píanóleikara. Lögin sem sungin eru ættu að vera flestum kunnug og að þessu sinni tengjast þau jólahátíðinni. Textanum verður varpað á skjá svo ekkert ætti að stoppa söngelskandi gesti safnsins.

Öll velkomin og engrar söngreynslu krafist, hver syngur með sínu nefi og höfum gaman saman!

Anna Sigríður stundaði söngnám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Söngskólann í Reykjavík, þaðan sem hún lauk námi við framhaldsdeild árið 1989. Næstu þrjú árin sótti hún einkatíma hjá Prof. Rina Malatrasi á Ítalíu. Anna Sigríður hefur tekið þátt í margskonar tónlistarflutningi, til að mynda einsöngstónleikum, óperu- og óperettuppfærslum, jazztónleikum og gospeltónleikum. Á árunum 2001 – 2012 starfaði hún sem tónlistarstjóri við Fríkirkjuna þar sem hún stjórnaði kór og söng við athafnir og einnig var hún leiðtogi í barna- og unglingastarfi Árbæjarkirkju um nokkurra ára skeið. Þá hefur Anna Sigríður sungið með sönghópunum Hljómeyki, Emil og Bjargræðiskvartettinum.

Aðalheiður Þorsteinsdóttir hefur starfað sem píanóleikari og organisti með fjölda einsöngvara og kóra. Einnig hefur hún sinnt kennslu, útsetningum, tölvusetningu nótnabóka og starfað hjá Íslenskri tónverkamiðstöð.

Viðburður á heimasíðu
Viðburður á Facebook

Ritstjórn nóvember 16, 2024 10:47