Súkkulaði ostakaka

Ostakökur eru oft mjög góðar. Þessi er ein af þeim betri sem við höfum prófað en höfundur uppskriftarinnar er Thelma Þorbergsdóttir. Uppskriftin birtist á vefnum Gott í matinn.

Botninn

70 g smjör

24 stk. Oreo kexkökur

Ostakaka

2.5 dl rjómi

550 g rjómaostur

100 g flórsykur

70 g sýrður rjómi frá

300 g dökkt súkkulaði

3 pokar af mini eggjum (80 g pokar)

Toppur

Rjómi,  þeyttur

Mini egg

 

Aðferð

Hakkið Oreokexkökur í matvinnsluvél, bræðið smjör og blandið saman við.

Setjið smjörpappír í hringlaga bökunarform, 22 cm að stærð og þrýstið Oreokexblöndunni ofan í botninn á forminu, gott er að nota botinn af t.d. glasi.

Setjið formið inn í frysti á meðan að þið undirbúið ostakökuna.

Þeytið rjómann þar til hann stendur.

Þeytið rjómaostinn í hrærivél þar til hann er orðinn mjúkur og sléttur.

Bætið flórsykri og sýrðum rjóma saman við og hrærið vel.

Bræðið súkkulaðið í potti undir lágum hita þar til það hefur bráðnað. Blandið súkkulaðinu saman við ostablönduna og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.

Blandið ostablöndunni og rjómanum saman við og hrærið með sleif.

Grófsaxið mini eggin og blandið saman við ostablönduna.

Hellið ostablöndunni ofan í bökunarformið og kælið í það minnsta 4 klst.

Skreytið með þeyttum rjóma og mini eggjum. Skerið í sneiðar og berið fram. Gott með ískaldri mjólk og meiri rjóma.

Ritstjórn júlí 3, 2019 15:01