Ragnhildur Erla Bjarnadóttir skrifar um bækur:
Á bókarkápu stendur Fiskur af himni 03.11.2014 – 03.11.2015 enda samanstendur bókin af ljóðum sem höfundur yrkir á þessu tímabili. Í upphafi er sagt frá hversdagslegum hlutum í lífi höfundar sem er nokkuð í líkingu við ljóðræna dagbók þar sem segir frá lífi venjulegrar íslenskrar fjölskyldu sem ferðast, horfir á fótbolta, nýtur jóla og áramóta og tekur á móti lífinu eins og það kemur fyrir. Skil verða þegar tilkynnt er um fyrsta barnabarnið
01.04.15
Að vera afi
Að verða framtíðinni fortíð
Verða hérinu þar
erinu var
Árstíðunum er fallega lýst, sérstaklega íslenska vorinu.
16.04.15
Íslenska vorið
engu líkt
Blóm sem blómgast
í frosti
Hrímaðar flugur
héluð lauf
og ískaldar sólskinsnætur
Hjörtu sem frjósa saman
Sorgin knýr dyra þegar litla barnabarnið fæðist andvana. Hallgrímur nær þvílíkum heljartökum á lesandanum í næstu ljóðum að ekki er hægt annað en að lifa sig inn á vanmátt fjölskyldunnar og taka þátt í hinni miklu sorg.
26.09.15
…………
Að fæða dauðann
er ekki verkefni lífsins
Við mótmælum öll
eins og hópur bölvandi bænda
með heykvíslar og heimagerð skilti
sem mótmælir fjalli
Úti á ganginum hríðskelfur faðirinn
í fangi okkar
Sorgin er köld
sorgin er ísköld
sorgin er svartur jökull
sem skríður yfir á rauðu
Kannski má finna örlítinn sáttatón þegar hlátur heyrist eftir útför litla barnsins.
Lífið er stærra en dauðinn
og dregur sig aðeins í hlé
rétt á meðan hann athafnar sig
en flæðir síðan
þeim mun kröftugar fram
í allri sinni miskunnarlausu
ofanjarðargleði (bls. 101)
Í þessu skáldverki er Hallgrímur á persónulegum nótum og með einlægni sinni nær hann vel til lesandann sem á auðvelt með að skilja og setja sig í spor hins syrgjandi afa. Mjög áhrifamikil bók.