Lax er dásamlegur matur hollur og góður. Það er því ekki úr vegi að grilla lax um helgina. Þessa uppskrift rákumst við á vefnum Krydd og krásir og hlökkum svo sannarlega til að prófa hana.
- 1 laxaflak
- 1 sítróna – ríflega helmingur skorin í þunnar sneiðar
- 1 appelsína – ríflega helmingur skorin í þunnar sneiðar
- 3-4 msk. gróft skornar ferskar kryddjurtir t.d. flatblaðasteinselja, timían, oreganó
- sjávarsalt
- nýmalaður svartur pipar
- olífuolía
Blandið saman olífuolíu, safa úr tæplega hálfri sítrónu og tæplega hálfri appelsínu og penslið laxaflakið. Kryddið með gróft skornum kryddjurtum, salti og pipar og látið standa í 15 – 30 mín. Raðið sítrónu og appelsínusneiðum á flakið. Setjið laxinn á vel heitt grill, snúið roðinu niður. Laxinn er grillaður allan tímann á roðhliðinni, honum er ekki snúið. Hafið grillið lokað og grillið í 15 – 20 mínútur. Berið fram með grilluðum aspas og eða góðu grænu salati og kartöflum.