Þegar tískutímaritið Allure tilkynnti í ágúst að það væri hættir að nota orðin „anti-aging“ yfir hrukkukrem og aðrar snyrtvörur sem eiga að halda konum unglegum, fögnuðu margir. Forráðamenn tímaritsins sögðu að fólk ætti að fagna hækkandi aldri og þakka fyrir hann. Í grein sem blaðakonan Jamie Feldman skrifar á vef Huffington Post segir hún að mörg tískufyrirtækin hafi tekið tilmæli Allure til sín það gildi þó ekki um hið goðsagankennda fyrirtæki Dior. Dior tilkynnti fyrir nokkrum dögum að hin 25 ára Cara Delevigne yrði andlit herferðar fyrirtækisins fyrir nýtt hrukkukem og línu sem á að hægja á öldrun húðarinnar. Snyrtivörulínu sem er ætlað að laga öll sýnileg merki um hrukkur og fínar línur í andlitum kvenna sem eru að eldast og eigi auk þess að auka ljóma húðarinnar til mikilla muna. Það varð allt brjálað á samfélagsmiðlum í kjölfar tilkynningar Dior. Hópar eldri kvenna sögðust ekki geta samsamað sig með 25 ára gamalli konu. Þetta væri hrein og bein móðgun við þær og þeirra aldur. Fjölmiðlafulltrúar Dior reyndu að verjast og sögðu að markhópurinn fyrir nýju línuna væri aðeins yngri en fyrir önnur hrukkukrem og snyrtivörur sem fyrirtækið framleiðir til að hægja á öldrun húðarinnar. Jamie segir að hún sé ekkert á móti því að fólk hugsi um húðina á sér hún sé á móti því að setja 25 ára konu í hlutverk þess að kynna vörur sem ætlaðar séu mun eldri aldrushópi kvenna. Það sé óraunhæft. Snyrtivöruframleiðendur hafi í áratugi reynt að koma ákveðinni staðalímynd af konum á framfæri. Þeir reyni að telja konum trú um að fegurð sé stöðluð. Jamie segir að það séu ekki nærri öll snyrtivörufyrirtæki sem hagi sér svona, hún nefnir L´Oreal sem hafi notað Jane Fonda, Diane Keaton og Hellen Mirren til að auglýsa vörur sínar. Jamie segir að hrukkukrem verði til á meðan fólk kaupi þau. En það séu aðrar og betri leiðir til að markaðssetja þau en Dior gerir nú.
Er hægt að nota 25 ára fyrirsætu til að selja eldri konum hrukkukrem?