Mál Gráa hersins var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur nú síðdegis og í kjölfar þess sendi GH út eftirfarandi tilkynningu.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði því síðdegis í dag að vísa frá dómi máli þriggja félaga Gráa hersins gegn Tryggingastofnun og íslenska ríkinu á grundvelli athugasemda sem stefndu höfðu uppi í greinargerð sinni og lutu að því að stefnendur skorti lögvarða hagsmuni í málinu. Þessum athugasemdum hafnaði dómari málsins í dag eftir munnlegan málflutning sem fram fór 29. janúar sl. þar sem fjallað var um þær. Samkvæmt niðurstöðu dómsins er málið tækt til efnismeðferðar.
Með málshöfðun þriggja félaga í Gráa hernum er þess krafist að viðurkennt verði að Tryggingastofnun ríkisins hafi verið óheimilt að skerða ellilífeyri þeirra samkvæmt lögum um almannatryggingar og heimilisuppbót samkvæmt lögum um félagslega aðstoð vegna greiðslna sem þau nutu út skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum. Samanlagðar skerðingar þessar nema 56,9% af greiðslum umfram 25.000 kr. á mánuði.
Skerðingu greiðslanna telur Grái herinn brjóta gegn 72. gr. stjórnarskrárinnar og 1. gr. 1 viðauka mannréttindasáttmála Evrópu og er vísað til nokkurra dóma Hæstaréttar, Landsréttar og yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu. Þær uppfylli ekki kröfur um lögmæti, réttmæti og meðalhóf, enda eru greiðslurnar grundvöllur framfærslu eftirlaunamannsins. Það er Málshöfðunarsjóður Gráa hersins sem tryggir fjármagn til málssóknarinnar, en fjölmörg félög eldra fólks um land allt hafa lagt málinu lið. Þá hefur almenningur og verkalýðsfélög stutt sjóðinn.